2.2.2023

Forseti Kósovó í vinnuheimsókn

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, tók í dag á móti forseta Kósovó til fundar í Alþingishúsinu en forsetinn, fr. Vjosa Osmani, er í vinnuheimsókn á Íslandi.

Gerði forseti Alþingis grein fyrir störfum Alþingis og skipulagi þess og ræddu þau samskipti landanna. Lýsti forseti Kósovó vilja þarlendra stjórnvalda til að taka virkari þátt í samvinnu Evrópuríkja.

Forsalur_Vinnuheimsokn-forseta-Kosovo-2023-02-01

Forseti Alþingis, Birgir Ármannsson, tók á móti forseta Kósovó, fr. Vjosa Osmani, í Alþingishúsinu í dag.