8.11.2022

Heimsþing kvenleiðtoga haldið í fimmta sinn á Íslandi 8.–9. nóvember

Heimsþing kvenleiðtoga, Reykjavík Global Forum – Women Leaders, verður haldið í fimmta sinn á Íslandi, 8.–9. nóvember í Hörpu. Heimsþingið er haldið í samstarfi alþjóðlegu þingkvennasamtakanna Women Political Leaders, ríkisstjórnar Íslands og Alþingis, auk fjölda erlendra og innlendra samstarfsaðila. Gestir Heimsþingsins áttu þess kost að heimsækja Alþingi í gærmorgun og fengu leiðsögn um húsið.

Yfirskrift Heimsþingins í ár er Power, Together for Partnership sem vísar til mikilvægis samstarfs og samstöðu um jafnréttismál. Væntanlegar eru kvenleiðtogar úr stjórnmálum, viðskiptum, fjölmiðlum, vísindum og tæknigeiranum og er tilgangurinn að gefa þátttakendum tækifæri til að ræða og skiptast á hugmyndum um hvernig kvenleiðtogar geti beitt sér fyrir betra samfélagi, auknu jafnrétti milli kynja og valdeflingu kvenna í sem víðustu samhengi. Verður sjónum m.a. beint að öryggi kvenna og stríðinu í Úkraínu, áhrifum heimsfaraldursins á jafnréttismál, stöðu kvenna á vinnumarkaði, nýjum áskorunum í stafrænum heimi, áhrifum loftslagsbreytinga og forystuhlutverki kvenna.

Rúmlega 500 kvenleiðtogar úr stjórnmálum, viðskiptum, fjölmiðlum, vísindum og víðar frá um 100 löndum taka þátt, þar af um 430 í Hörpu og 100 með rafrænum hætti. Meðal þátttakenda á Heimsþinginu í ár eru: Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra, Sima Bahous, framkvæmdastjóri UN Women og aðstoðarframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, Bidhya Devi Bhandari forseti Nepal, Eliza Reid forsetafrú, Sviatlana Tsikhanouskaya leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Hvíta-Rússlandi, Sima Sami Bahous framkvæmdastjóri UN Women, Dalia Grybauskaite fyrrverandi forseti Litháen, Marie-Louise Coleiro Preca fyrrverandi forseti Möltu, Margarita Robles Fernández varnarmálaráðherra Spánar, Sviatlana Tsikhanouskaya, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Belarús, Lesia Vasylenko, þingkona frá Úkraínu, Ulrik Vestergaard Knudsen, aðstoðarframkvæmdastjóri OECD, Ann Cairns stjórnarformaður Mastercard, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fv. utanríkisráðherra og fv. framkvæmdastjóri Lýðræðis- og mannréttindastofnunar ÖSE, ásamt yfir 100 þingkonum alls staðar að úr heiminum og fjölmörgum öflugum kvenleiðtogum af yngri kynslóðinni.

Forseti Alþingis mun taka þátt í setningu þingsins og stýra umræðum þingkvenna undir liðnum „Voices of Parliaments“, en á Heimsþinginu verða sendinefndir frá 22 þjóðþingum. Allar konur á Alþingi eru boðnar á Heimsþingið og munu margar þeirra taka virkan þátt í þinginu.

Á Heimsþingi kvenleiðtoga verða kynntar nýjar niðurstöður mælaborðsins „Reykjavik Index“ sem mælir afstöðu almennings um allan heim til karla og kvenna sem leiðtoga. Hanna Birna Kristjánsdóttir er stjórnarformaður og annar stofnenda Heimsþings kvenleiðtoga. ,,Það er afar ánægjulegt að taka á móti svo stórum hópi kvenleiðtoga í Hörpu og fá tækifæri eitt árið enn til að kynna árangur Íslands í jafnréttismálum. Ísland hefur í þrettán ár mælst efst landa þegar kemur að jafnrétti og alþjóðlega er litið til okkar sem fyrirmyndar. Heimsþing kvenleiðtoga hefur fest sig í sessi sem vettvangur umræðu fyrir alþjóðlega kvenleiðtoga og við vitum og finnum að viðburðinn skiptir máli og hefur þegar skilað árangri.”

Silvana Koch-Mehrin er forseti Women Political Leaders og annar stofnenda Heimsþings kvenleiðtoga. Hún segir mikilvægt að kvenleiðtogar um allan heim og úr öllum geirum taki höndum saman um mikilvæg úrlausnarefni eins og umhverfismál, stríðsátök og aðrar áskoranir samtímans. ,,Það er WPL mikill heiður að eiga í svo árangursríku og ánægjulegu samstarfi við ríkisstjórn Íslands og Alþingi í fimmta sinn. Fleiri konur í forystu og jafnrétti kynjanna þolir enga bið. Samtalið á Heimsþingi kvenleiðtoga hefur raunveruleg áhrif.”

Frekari upplýsingar á vef Heimsþingsins.

20221107_121143

Gestir Heimsþingsins áttu þess kost að heimsækja Alþingi í gærmorgun. Fjöldi gesta nýtti sér það boð og fékk leiðsögn um húsið.

20221107_105244
20221107_115136


20221107_113938