23.10.2019

Forseti Alþingis sækir ráðstefnu forseta þjóðþinga aðildarríkja Evrópuráðsins.

Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis, sækir ráðstefnu forseta þjóðþinga aðildarríkja Evrópuráðsins í Strassborg 24.–25. október 2019. Ráðstefnan er haldin annað hvert ár, ýmist í Strassborg eða einu hinna 47 aðildarríkja Evrópuráðsins. Á dagskrá ráðstefnunnar að þessu sinni eru þrjú meginmálefni: Horft til framtíðar á 70 ára afmæli Evrópuráðsins; hlutverk þjóðþinga við innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna og að síðustu staða kvenna í stjórnmálum og opinberri umræðu.