Vilhjálmur Hjálmarsson

Vilhjálmur Hjálmarsson

Þingseta

Alþingismaður Suður-Múlasýslu 1949–1956 og 1959, alþingismaður Austurlands 1967–1979 (Framsóknarflokkur).

Varaþingmaður Austurlands mars 1961, maí 1964, apríl–maí 1965 og apríl–maí 1966 (Framsóknarflokkur).

Menntamálaráðherra 1974–1978.

2. varaforseti sameinaðs þings 1974.

Minningarorð
Raddsýnishorn

Æviágrip

Fæddur á Brekku í Mjóafirði 20. september 1914, dáinn 14. júlí 2014. Foreldrar: Hjálmar Vilhjálmsson (fæddur 25. apríl 1887, dáinn 12. mars 1976) útvegsbóndi þar og kona hans Stefanía Sigurðardóttir (fædd 23. júní 1879, dáin 7. mars 1972) húsmóðir, móðursystir Sigurðar Vilhjálmssonar varaþingmanns, ömmusystir Tómasar Árnasonar alþingismanns og ráðherra. Maki (12. desember 1936) Anna Margrét Þorkelsdóttir (fædd 15. febrúar 1914, dáin 21. apríl 2008) húsmóðir. Foreldrar: Þorkell Björnsson og Helga Ólafsdóttir. Börn: Hjálmar (1937), Páll (1940), Sigfús Mar (1944), Stefán (1949), Anna (1954).

Héraðsskólapróf Laugarvatni 1935.

Bóndi á Brekku í Mjóafirði 1936–1967, fyrst með föður og föðurbróður, síðar með syni. Kennari við barnaskólann í Mjóafirði 1936–1947, skólastjóri 1956–1967. Vann jafnan nokkuð við jarðvinnslu í Mjóafirði haust og vor, síðar forstöðumaður Ræktunarfélags Mjóafjarðar, verkstjóri við vegagerð um tíma. Rak með öðrum síldarsöltun í Mjóafirði 1964–1970. Skipaður 28. ágúst 1974 menntamálaráðherra, lausn 27. júní 1978, en gegndi störfum til 1. september. Aðstoðarsáttasemjari 1979–1980.

Í hreppsnefnd Mjóafjarðarhrepps 1946–1990, oddviti 1950–1978. Fulltrúi Sunnmýlinga á fundum Stéttarsambands bænda 1945–1967, í stjórn sambandsins og Framleiðsluráði landbúnaðarins 1963–1974 og í verðlagsnefnd landbúnaðarafurða 1965–1972. Formaður skólanefndar Húsmæðraskólans á Hallormsstað 1954–1974. Í sýslunefnd Suður-Múlasýslu 1960–1988. Formaður Kjördæmissambands framsóknarmanna á Austurlandi 1962–1967. Skipaður 1965 í endurskoðunarnefnd laga um afurðasölu landbúnaðarins, 1968 í nefnd til að athuga ýmsa þætti landbúnaðarmála, 1969 í endurskoðunarnefnd laga um stofnlánadeild landbúnaðarins o. fl. og 1972 í nefnd til að endurskoða löggjöf um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Fulltrúi Mjóafjarðarhrepps í Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi 1967–1990, í stjórn þess 1980–1983, formaður tvö ár. Kosinn 1973 í flutningskostnaðarnefnd, formaður nefndarinnar. Í kirkjuráði 1976–1982. Skipaður 1978 formaður nefndar um rekstrarlán landbúnaðarins. Í byggingarnefnd Safnahússins á Egilsstöðum 1979–1991. Formaður stjórnar Menningarsjóðs félagsheimila 1980–1988. Formaður útvarpsráðs 1980–1983. Var í nefnd um endurskoðun útvarpslaga 1981–1982 og í byggingarnefnd Ríkisútvarpsins 1981–1990.

Alþingismaður Suður-Múlasýslu 1949–1956 og 1959, alþingismaður Austurlands 1967–1979 (Framsóknarflokkur).

Varaþingmaður Austurlands mars 1961, maí 1964, apríl–maí 1965 og apríl–maí 1966 (Framsóknarflokkur).

Menntamálaráðherra 1974–1978.

2. varaforseti sameinaðs þings 1974.

Ritaði endurminningar: Raupað úr ráðuneyti (1981) og sjálfsævisögu: Hann er sagður bóndi (1991). Skrifaði ævisögu Eysteins Jónssonar í þrem bindum (1983–1985) og Mjófirðingasögur í þrem bindum (1987–1990).

Ritstjóri: Austri (1963–1973).

Æviágripi síðast breytt 6. apríl 2020.

Áskriftir