Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. febrúar 2010. Útgáfa 138a. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um lífræna landbúnaðarframleiðslu
1994 nr. 162 31. desember
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 10. janúar 1995. EES-samningurinn: II. viðauki tilskipun 91/2092/EBE. Breytt með l. 150/2001 (tóku gildi 31. des. 2001; EES-samningurinn: I og II. viðauki reglugerð 2092/91), l. 72/2003 (tóku gildi 10. apríl 2003), l. 62/2005 (tóku gildi 1. júlí 2005), l. 76/2005 (tóku gildi 1. jan. 2006), l. 34/2007 (tóku gildi 30. mars 2007), l. 167/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008) og l. 88/2008 (tóku gildi 1. jan. 2009 nema brbákv. VII sem tók gildi 21. júní 2008).
1. gr. Tilgangur laga þessara er að tryggja að framleiðsla, úrvinnsla, flutningur, geymsla og dreifing landbúnaðarafurða sem framleiddar eru með lífrænum aðferðum lúti ákveðnum reglum á lögbýlum og í fyrirtækjum sem hafa fengið vottun til notkunar á vörumerki lífrænnar framleiðslu.
2. gr. Lög þessi taka til framleiðslu, vinnslu, flutnings, geymslu og dreifingar hvers konar lífrænna landbúnaðarafurða.
[Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra] 1) hefur á hendi yfirstjórn þeirra mála er lög þessi taka til.
1)L. 167/2007, 68. gr.
3. gr. Innlendum sjálfstæðum stofum, einstaklingum eða stofnunum er heimilað að annast vottunarþjónustu fyrir lögbýli og fyrirtæki í lífrænni framleiðslu að því tilskildu að þær hafi faggildingu. Þær nefnast vottunarstofur.
Faggildingu vottunarstofa annast [faggildingarsvið Einkaleyfastofu] 1) í samræmi við reglugerð um starfsemi faggiltra vottunarstofa og nánari reglur er [sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra] 2) setur.
1)L. 34/2007, 13. gr. 2)L. 167/2007, 68. gr.
4. gr. [Matvælastofnun] 1) veitir framleiðendum starfsleyfi að uppfylltum kröfum skv. 3. gr. og heldur skrá um öll lögbýli og fyrirtæki sem hafa fengið vottun um lífrænar framleiðsluaðferðir. Gerist þessir aðilar brotlegir getur [Matvælastofnun] 1) svipt þá starfsleyfi og heimild til að nota vörumerki um lífræna framleiðslu.
1)L. 167/2007, 68. gr.
5. gr. Forsvarsmönnum lögbýla eða fyrirtækja í lífrænni framleiðslu er skylt að veita [Matvælastofnun] 1) eða samningsbundnum vottunarstofum allar upplýsingar og þá aðstoð sem nauðsynleg er við vottunina, þar með talinn aðgang að hverjum þeim stað þar sem lífrænar landbúnaðafurðir eru unnar eða geymdar. Vottunarstofur skulu fara með upplýsingar sem þær afla sem trúnaðarmál. Skylt er að láta vottunarstofu í té án endurgjalds sýni af lífrænni framleiðslu til rannsókna.
1)L. 167/2007, 68. gr.
6. gr. [[Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra] 1) setur reglugerð 2) þar sem tilgreindar eru lágmarkskröfur sem gerðar eru til vottaðra lífrænna framleiðsluhátta við íslenskar aðstæður í samræmi við grunnreglur Alþjóðasamtaka lífrænna landbúnaðarhreyfinga (IFOAM), skuldbindingar Íslands skv. I. og II. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og skuldbindingar Íslands samkvæmt viðauka F við stofnsamning Fríverslunarsamtaka Evrópu.] 3)
1)L. 167/2007, 68. gr. 2)Rg. 219/1995, sbr. 90/1998, 395/1999 og 946/2000, sjá þó ákv. rg. 74/2002. Rg. 74/2002, sbr. 582/2003, 571/2005, 980/2005, 732/2006, 38/2008, 125/2008, 824/2008, 951/2008, 9/2009 og 161/2009. 3)L. 72/2003, 32. gr.
7. gr. [Hver sá sem brýtur gegn ákvæðum laga þessara eða reglna settra samkvæmt þeim skal sæta sektum nema þyngri refsing liggi við samkvæmt öðrum lögum. Sektir renna í ríkissjóð.
… 1)] 2)
1)L. 88/2008, 233. gr. 2)L. 150/2001, 2. gr.
8. gr. Lög þessi öðlast þegar gildi.