Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 11. september 2012. Útgáfa 140b. Prenta í tveimur dálkum.
[Lög um tilraunastöð Búnaðarsambands Suðurlands og Landbúnaðarháskóla Íslands að Stóra-Ármóti]1)
1981 nr. 29 26. maí
1)L. 79/2004, 5. gr.
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 9. júní 1981. Breytt með l. 79/2004 (tóku gildi 1. jan. 2005) og l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
1. gr. [Ráðherra] 1) er heimilt að semja við stjórn Búnaðarsambands Suðurlands um sameiginlegan rekstur tilraunastöðvar að Stóra-Ármóti í Flóa.
1)L. 126/2011, 89. gr.
2. gr. Aðalviðfangsefni tilraunastöðvarinnar skal vera alhliða tilraunastarfsemi í nautgriparækt með aðaláherslu á fóðrun og meðferð gripa, en auk þess sinni hún verkefnum á sviði annarra búgreina, eftir því sem aðstæður leyfa hverju sinni.
3. gr. Tilraunastarfsemin verði rekin innan sviðs landbúnaðarrannsókna á Íslandi samkvæmt lögum nr. 64/1965 um rannsóknir í þágu atvinnuveganna [og lögum nr. 57/1999, um búnaðarfræðslu, ásamt síðari breytingum]. 1)
1)L. 79/2004, 5. gr.
4. gr. Þátttaka ríkissjóðs í kostnaði við mannvirkjagerð og rekstur ákvarðast af fjárveitingu hverju sinni.
5. gr. Við tilraunastöðina starfi sérfræðingur í fóðurfræði og rannsóknamaður, ráðnir af [Landbúnaðarháskóla Íslands], 1) en launaðir af ríkissjóði. Auk þess skulu sérfræðingar [Landbúnaðarháskóla Íslands] 1) og ráðunautar Búnaðarsambands Suðurlands hafa aðstöðu til rannsókna á tilraunastöðinni, eftir því sem aðstæður leyfa hverju sinni samkvæmt mati stjórnar tilraunastöðvarinnar.
1)L. 79/2004, 5. gr.
6. gr. Tilraunastöðin starfar undir yfirstjórn þriggja manna, og skal hún skipuð þannig: Einn maður tilnefndur af Búnaðarsambandi Suðurlands, [einn maður tilnefndur af Landbúnaðarháskóla Íslands] 1) og starfandi bóndi á svæði Búnaðarsambands Suðurlands, tilnefndur af [ráðherra]. 2)
Ráðherra skipar stjórn og stjórnarformann til 4ra ára í senn.
1)L. 79/2004, 5. gr. 2)L. 126/2011, 89. gr.