Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. september 2014. Útgáfa 143b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um gistináttaskatt
2011 nr. 87 23. júní
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. janúar 2012. Breytt með l. 164/2011 (tóku gildi 30. des. 2011 nema 1.–2., 4.–5., 7., 15.–21., 24.–27., 29.–30. og 34.–39. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2012; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 40. gr.).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við fjármála- og efnahagsráðherra eða fjármála- og efnahagsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr. Markmið.
Markmið laga þessara er að afla tekna til að stuðla að uppbyggingu, viðhaldi og verndun fjölsóttra ferðamannastaða, friðlýstra svæða og þjóðgarða. Jafnframt að afla tekna til þess að tryggja öryggi ferðamanna og vernda náttúru landsins.
2. gr. Gistináttaskattur.
Greiða skal í ríkissjóð gistináttaskatt af hverri seldri gistináttaeiningu eftir því sem nánar er ákveðið í lögum þessum. Gistináttaeining er leiga á gistiaðstöðu í allt að einn sólarhring, þ.m.t. yfir nótt. Með gistiaðstöðu er átt við húsnæði eða svæði sem leigt er út í þeim tilgangi að þar sé dvalið yfir nótt, svefnaðstaða sé fyrir hendi eða hægt sé að koma henni fyrir og leigan sé almennt til skemmri tíma en eins mánaðar, svo sem hús, íbúðir og herbergi, þ.m.t. herbergi á hótelum og gistiheimilum, sem og tjaldstæði og stæði fyrir húsbíla, tjaldvagna, fellihýsi og hjólhýsi.
Gistináttaskattur skal nema 100 kr. fyrir hverja selda gistináttaeiningu.
Tilgreina skal gistináttaskatt á sölureikningi eða greiðslukvittun og myndar hann stofn til virðisaukaskatts.
3. gr. Undanþágur.
[Ekki skal leggja gistináttaskatt á sölu gistingar sem ekki ber virðisaukaskatt samkvæmt lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.] 1)
1)L. 164/2011, 34. gr.
4. gr. Skattskyldir aðilar.
Öllum þeim sem selja gistináttaeiningar skv. 1. mgr. 2. gr. ber skylda til að innheimta og standa skil á gistináttaskatti.
… 1)
Skattskyldir aðilar skulu ótilkvaddir senda ríkisskattstjóra tilkynningu um skattskylda starfsemi áður en hún hefst.
Ríkisskattstjóri heldur skrá yfir skattskylda aðila samkvæmt lögum þessum.
1)L. 164/2011, 35. gr.
5. gr. Álagning gistináttaskatts.
Ríkisskattstjóri annast álagningu gistináttaskatts skv. 2. gr. Skattskyldir aðilar skulu greiða gistináttaskatt fyrir hvert uppgjörstímabil miðað við fjölda seldra gistináttaeininga.
[Uppgjörstímabil gistináttaskatts skulu vera þau sömu og uppgjörstímabil virðisaukaskatts hjá skattaðila, sbr. 24. og 31. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.] 1) Gjalddagi er fimmti dagur annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils. Beri gjalddaga upp á helgidag eða almennan frídag færist hann yfir á næsta virka dag á eftir. Eigi síðar en á gjalddaga skulu skattskyldir aðilar ótilkvaddir skila innheimtumanni ríkissjóðs skýrslu um fjölda seldra gistináttaeininga á uppgjörstímabilinu og standa skil á greiðslu skattsins.
Skýrslur vegna gistináttaskatts skulu vera á því formi sem ríkisskattstjóri ákveður.
1)L. 164/2011, 36. gr.
6. gr. Viðurlög.
Sé gistináttaskatti ekki skilað á réttum tíma skal skattskyldur aðili sæta álagi til viðbótar skatti samkvæmt skýrslu um fjölda seldra gistináttaeininga. Álag skal vera 1% af þeirri fjárhæð sem vangreidd er fyrir hvern byrjaðan dag eftir gjalddaga, þó verður það ekki hærra en 10%.
Sé skatti ekki skilað innan mánaðar frá gjalddaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er.
Heimilt er innheimtumanni ríkissjóðs að láta lögreglu stöðva atvinnurekstur þess er eigi gerir skil á réttum gjalddaga þar til skil eru gerð, m.a. með því að setja skrifstofur, starfsstöðvar og gistiaðstöðu hans undir innsigli.
7. gr. Ýmis ákvæði.
Að því leyti sem eigi er ákveðið í lögum þessum um álagningu, innheimtu, tilhögun bókhalds, eftirlit, upplýsingaskyldu, viðurlög, kærur og aðra framkvæmd skulu gilda, eftir því sem við geta átt, ákvæði laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.
8. gr. Reglugerðarheimild.
Ráðherra er heimilt að setja nánari reglur um framkvæmd laga þessara í reglugerð.
9. gr. Gildistaka.
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2012 og gilda um þær gistináttaeiningar sem seldar eru frá og með þeim degi.