Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Athugið að þetta er ekki nýjasta útgáfa lagasafns.
Lagasafn. Íslensk lög 1. janúar 2015. Útgáfa 144a. Prenta í tveimur dálkum.
[Lög um Matvælastofnun]1)
2005 nr. 80 24. maí
1)L. 167/2007, 61. gr.
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. janúar 2006. Breytt með l. 60/2006 (tóku gildi 1. júlí 2006), l. 61/2006 (tóku gildi 1. júlí 2006), l. 167/2007 (tóku gildi 1. jan. 2008), l. 81/2008 (tóku gildi 1. júlí 2008), l. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011), l. 157/2012 (tóku gildi 3. jan. 2013), l. 55/2013 (tóku gildi 1. jan. 2014) og l. 49/2014 (tóku gildi 29. maí 2014 nema 3. gr., 5. gr., 2. mgr. 7. gr., 3. og 5. mgr. c-liðar 8. gr., a-liður 11. gr., 12. gr., 16. gr., 21. gr. og 22. gr. sem tóku gildi 1. jan. 2015).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra eða atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
1. gr. Ríkið starfrækir stofnun sem nefnist [Matvælastofnun]. 1) Aðsetur stofnunarinnar er þar sem ráðherra ákveður. [Ráðherra] 2) fer með yfirstjórn þeirra mála sem lög þessi taka til.
1)L. 167/2007, 57. gr. 2)L. 126/2011, 408. gr.
2. gr. Hlutverk stofnunarinnar er:
a. að annast starfsemi sem yfirdýralækni er falin samkvæmt lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr, lögum nr. 25/1993, um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum nr. 96/1997, um eldi og heilbrigði sláturdýra, slátrun, vinnslu, heilbrigðisskoðun og gæðamat á sláturafurðum, 1) lögum nr. 93/1995, um matvæli, lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, … 2) sóttvarnalögum, nr. 19/1997, lögum nr. 94/1962, um almannavarnir, lögum nr. 67/1990, um Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum, lögum nr. 54/1990, um innflutning dýra, … 2) [lögum um varnir gegn fisksjúkdómum], 3) lyfjalögum, nr. 93/1994, …, 4) lögum nr. 6/1986, um afréttamálefni, fjallskil o.fl., og lögum nr. 55/2002, um útflutning hrossa,
b. að annast starfsemi sem aðfangaeftirlitinu er falin samkvæmt lögum nr. 22/1994, um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru, og lögum nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr,
c. að annast starfsemi sem [ráðherra] 5) hefur falið plöntueftirliti Landbúnaðarháskóla Íslands samkvæmt lögum nr. 51/1981, um varnir gegn sjúkdómum og meindýrum á plöntum,
d. að annast starfsemi sem kjötmatsformanni er falin samkvæmt lögum nr. 96/1997, um eldi og heilbrigði sláturdýra, slátrun, vinnslu, heilbrigðisskoðun og gæðamat á sláturafurðum, 1)
e. [að annast verkefni sem stofnuninni eru falin samkvæmt lögum um velferð dýra og lögum um búfjárhald o.fl.], 2)
f. að annast starfsemi sem Bændasamtök Íslands hafa annast skv. 1. og 2. mgr. 38. gr., 4. mgr. 39. gr., a-lið 1. mgr. 42. gr., 2. mgr. 44. gr., 1. og 3. mgr. 53. gr., 2. mgr. 54. gr. og 2. mgr. 82. gr. laga nr. 99/1993, um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, …, 2)
g. að annast verkefni sem [ráðherra] 5) eru falin skv. 4. og 5. gr. laga nr. 162/1994, um lífræna landbúnaðarframleiðslu.
[h. að annast eftirlit með meðferð fisks og framleiðslu sjávarafurða samkvæmt lögum um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða, nr. 55/1998,
i. að annast eftirlit með matvælum samkvæmt lögum um matvæli, nr. 93/1995,
j. … 4)], 6)
[k. að annast starfsemi dýraverndarráðs og eftirlit með framkvæmd laga um dýravernd, nr. 15/1994], 7)
[l. að annast framkvæmd stjórnsýslu og eftirlit með ákvæðum laga um fiskeldi, nr. 71/2008]. 8)
1)Nú lög um slátrun og sláturafurðir. 2)L. 55/2013, 49. gr. 3)L. 60/2006, 13. gr. 4)L. 81/2008, 12. gr. 5)L. 126/2011, 408. gr. 6)L. 167/2007, 58. gr. 7)L. 157/2012, 17. gr. 8)L. 49/2014, 21. gr.
3. gr. Við stofnunina starfar forstjóri skipaður af [ráðherra] 1) til fimm ára í senn. Skal forstjóri hafa háskólamenntun. Hann skal jafnframt hafa öðlast stjórnunarreynslu. Forstjóri fer með yfirstjórn stofnunarinnar, mótar stefnu í störfum hennar og ber ábyrgð á fjárhagslegum rekstri hennar.
1)L. 126/2011, 408. gr.
4. gr. [Matvælastofnun] 1) skiptist í svið eftir viðfangsefnum. Forstjóri ræður sviðsstjóra yfir hvert svið og skulu þeir hafa aflað sér bæði háskólamenntunar og sérþekkingar á viðkomandi sviði. [Þó skal ráðherra skipa sviðsstjóra yfir sérstöku sviði sem fara skal með dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim og velferð dýra.] 2) Sá sviðsstjóri skal vera dýralæknir að mennt og nefnast yfirdýralæknir. Skal hann heyra undir forstjóra sem jafnframt setur honum erindisbréf með hliðsjón af þeim verkefnum sem yfirdýralækni eru sérstaklega falin með lögum. Yfirdýralæknir skal vera staðgengill forstjóra. Forstjóri ræður annað starfsfólk nema annað sé tekið fram í lögum.
[Ráðherra] 3) setur í reglugerð 4) nánari ákvæði um skipulag og starfsemi stofnunarinnar að fengnum tillögum forstjóra.
1)L. 167/2007, 57. gr. 2)L. 55/2013, 49. gr. 3)L. 126/2011, 408. gr. 4)Rg. 1/2008, sbr. 1073/2012.
[5. gr. … 1)] 2)
1)L. 81/2008, 13. gr. 2)L. 61/2006, 57. gr.
[5. gr. a. Ráðherra getur falið Matvælastofnun að gera samkomulag við aðrar ríkisstofnanir um að annast tiltekna þætti í starfsemi stofnunarinnar.] 1)
1)L. 167/2007, 59. gr.
[6. gr.]1) Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2006.
… Auk þess eru stofnanir aðfangaeftirlits, yfirdýralæknis og veiðimálastjóra lagðar niður en [Matvælastofnun] 2) tekur við réttindum og skyldum þessara stofnana gagnvart einstaklingum, lögaðilum og stofnunum. Við gildistöku laga þessara renna eignir aðfangaeftirlitsins, yfirdýralæknis og veiðimálastjóra til [Matvælastofnunar]. 2) Að auki fellur skipun forstöðumanna þessara stofnana niður frá og með gildistöku laga þessara og fer um réttindi og skyldur þeirra samkvæmt lögum nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Skipun kjötmatsformanns fellur niður frá og með sama tíma og fer um réttindi og skyldur hans samkvæmt lögum nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Við gildistöku laga þessara renna eignir embættis kjötmatsformanns til [Matvælastofnunar] 2) og tekur hún við réttindum og skyldum embættisins gagnvart einstaklingum, lögaðilum og stofnunum. Eins fellur niður við gildistöku laga þessara skipun [ráðherra] 3) í störf héraðsdýralækna og dýralæknis fisksjúkdóma og fer um réttindi og skyldur þeirra samkvæmt lögum nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Á sama tíma færist plöntueftirlit Landbúnaðarháskóla Íslands yfir til [Matvælastofnunar]. 2)
Stjórnvaldsfyrirmæli sem sett hafa verið samkvæmt lögum sem nefnd eru í 2. gr. halda gildi sínu að svo miklu leyti sem þau brjóta ekki í bága við ný lög þar til ný stjórnvaldsfyrirmæli hafa verið sett.
Leyfi sem gefin hafa verið út á grundvelli laga sem nefnd eru í 2. gr. halda gildi sínu þar til gildistími þeirra rennur út, þau uppfylla ekki lengur skilyrði laga, eða þar til ný leyfi eru útgefin.
1)L. 61/2006, 57. gr. 2)L. 167/2007, 57. gr. 3)L. 126/2011, 408. gr.
Ákvæði til bráðabirgða.
I. Störf hjá aðfangaeftirlitinu, yfirdýralækni, veiðimálastjóra, kjötmatsformanni og plöntueftirliti Landbúnaðarháskóla Íslands eru lögð niður við gildistöku þessara laga. Starfsfólki framangreindra skulu boðin störf hjá Landbúnaðarstofnun. Ákvæði 7. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, gilda ekki um störf sem ráðið er í samkvæmt þessu ákvæði.
II. Þrátt fyrir 5. gr. skal forstjóri Landbúnaðarstofnunar skipaður frá 1. ágúst 2005 og skal hann frá þeim tíma undirbúa gildistöku laga þessara í samstarfi við landbúnaðarráðuneytið.
[III. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra er heimilt að ákveða með auglýsingu, er birta skal í B-deild Stjórnartíðinda, að flutningur málefna frá Fiskistofu til Matvælastofnunar, sbr. h- og j-lið 2. gr., komi til framkvæmda að hluta eða öllu leyti síðar á árinu 2008.] 1)
1)L. 167/2007, 60. gr.
[IV. Við flutning á málefnum frá Fiskistofu og Umhverfisstofnun til Matvælastofnunar skv. h-, i- og j-lið 2. gr. halda starfsmenn störfum sínum og starfskjörum. Við ráðstöfun starfa samkvæmt þessu ákvæði þarf ekki að gæta 7. gr. laga nr. 70/1996, um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins.] 1)
1)L. 167/2007, 60. gr.
[V. Á árinu 2008 skal heimild skv. 5. gr. a til að gera samninga við Fiskistofu um að annast tiltekna þætti í starfsemi Matvælastofnunar ná til allra verkefna sem við gildistöku þessara laga eru á verksviði stofnunarinnar samkvæmt lögum nr. 55/1998, um meðferð, vinnslu og dreifingu sjávarafurða, með síðari breytingum, þ.m.t. ákvarðana um þvingunarúrræði og viðurlög skv. III.–VI. kafla laganna, svo sem leyfissviptinga, ákvarðana um stöðvun vinnslu og dreifingar afurða, stöðvun innflutnings, innköllun, endursendingu, förgun, eyðingu, geymslu og ráðstöfun afurða, og ákvarðana um önnur þvingunarúrræði og viðurlög, svo og ákvarðana um kostnað við að framfylgja ákvæðum laganna.] 1)
1)L. 167/2007, 60. gr.