Lagasafn. Íslensk lög 12. apríl 2024. Útgáfa 154b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um útrýmingu sels í Húnaósi
1937 nr. 29 13. júní
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 6. júlí 1937.
1. gr.
Veiðifélag Vatnsdalsár skal hafa einkarétt til að útrýma sel úr Húnaósi. Ræður stjórn félagsins mann eða menn til starfans.
2. gr.
Presturinn í Steinnesi fái bætur fyrir missi heimatekna vegna selveiði í Húnaósi. Ríkissjóður greiðir bæturnar eins og þær eru metnar.