Lagasafn. Íslensk lög 12. apríl 2024. Útgáfa 154b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um heimild til samninga um álbræðslu á Grundartanga
1997 nr. 62 27. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 30. maí 1997. Breytt með: L. 12/2000 (tóku gildi 28. apríl 2000). L. 75/2002 (tóku gildi 17. maí 2002). L. 85/2003 (tóku gildi 10. apríl 2003; komu til framkvæmda skv. fyrirmælum í 4. gr.). L. 129/2004 (tóku gildi 31. des. 2005). L. 69/2005 (tóku gildi 9. júní 2005). L. 157/2006 (tóku gildi 30. des. 2006). L. 151/2009 (tóku gildi 1. jan. 2010). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011). L. 46/2018 (tóku gildi 1. júlí 2018; um lagaskil sjá 19. gr.).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra eða háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1)L. 126/2011, 242. gr. 2)L. 157/2006, 1. gr. 3)L. 85/2003, 1. gr. 4)L. 75/2002, 1. gr. 5) Augl. 596/1997. Augl. 830/2008.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1)L. 126/2011, 242. gr. 2)L. 85/2003, 2. gr.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1)L. 46/2018, 20. gr.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1. [Þrátt fyrir breytingar, sem síðar kunna að verða á [ lögum nr. 90/2003, um tekjuskatt], 1) skal félagið greiða 18% tekjuskatt með eftirfarandi sérákvæðum:
a. Ef tekjuskattshlutfall á félög með takmarkaðri ábyrgð, sbr. 1. tölul. 2. gr. [ laga nr. 90/2003, um tekjuskatt], 1) er lægra en 18% 1. október 2007 skal það hlutfall gilda um félagið. Verði tekjuskattshlutfallið hækkað að nýju skal það gilda um félagið en skal þó aldrei vera hærra en 18%.
b. … 2)
c. Varanlegir rekstrarfjármunir vegna byggingar verksmiðjunnar skulu teljast byggingar, vélar og tæki í ákveðnum hlutföllum sem samið verður um. Fastafjármunir, sem að öðru leyti er aflað vegna endurbóta á verksmiðjunni, skulu flokkaðir í samræmi við [ 33. og 37. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt]. 1) Fyrningu skal hagað í samræmi við 5. tölul. þessarar greinar.
d. Félaginu skal heimilt að draga frá skattskyldum tekjum á hverju ári eftirstöðvar rekstrartapa frá síðustu níu almanaksárum eins og nánar er kveðið á um í 8. tölul. 1. mgr. 31. gr. [ laga nr. 90/2003, um tekjuskatt]. 1) Ef íslenskum fyrirtækjum verður heimilað að draga eftirstöðvar rekstrartapa fleiri ára frá skattskyldum tekjum fram til 1. október 2007 skal sama gilda um félagið. Verði árunum fækkað síðar skal það sama gilda um félagið, þó þannig að því skal ávallt heimilt að draga frá skattskyldum tekjum eftirstöðvar rekstrartapa síðustu níu almanaksára.
e. Félaginu skal óheimilt að draga frá skattskyldum tekjum á hverju ári og leggja í sérstakan innri fjárfestingarsjóð fjárhæð sem svarar til 4% af nafnverði hlutafjár. Fé í fjárfestingarsjóði sem notað er til fjárfestinga í varanlegum fastafjármunum innan sex ára skal talið til skattskyldra tekna félagsins á því ári sem fjárfesting á sér stað. Þá skal félaginu heimilt að hraða afskriftum um þá fjárhæð sem tekin er úr fjárfestingarsjóði á því ári sem fjárfestingin á sér stað. Fé í fjárfestingarsjóði sem ekki hefur verið notað til fjárfestinga innan sex ára skal talið til skattskyldra tekna og skattlagt með skatthlutfalli því sem gilti þegar féð var lagt í fjárfestingarsjóðinn. Það sama skal gilda ef félaginu er slitið.] 3)
2. … 1)
3. Félagið skal vera undanþegið iðnlánasjóðsgjaldi samkvæmt lögum nr. 76/1987, 4) um Iðnlánasjóð, iðnaðarmálagjaldi samkvæmt lögum nr. 134/1993, um iðnaðarmálagjald, og markaðsgjaldi samkvæmt lögum nr. 114/1990, um Útflutningsráð Íslands, með áorðnum breytingum, sem og sköttum eða gjöldum sömu eða að verulegu leyti svipaðrar tegundar sem síðar kynnu að verða lögð á til viðbótar við eða í staðinn fyrir iðnlánasjóðsgjald, iðnaðarmálagjald eða markaðsgjald.
4. Sérákvæði 1., 2. og 3. tölul. að framan skulu gilda fyrsta samningstímabilið (eins og það er skilgreint í samningnum) eða þar til kemur til fyrri uppsagnar á samningnum skv. 1. gr. Verði gerðar breytingar á [lögum um tekjuskatt] 1) skal félagið eiga rétt á að sérákvæði verði endurskoðuð í þeim tilgangi að tryggja að ekki séu lagðir á félagið þyngri skattar en ef það væri skattlagt samkvæmt lögunum, án hinna áðurnefndu sérstöku ákvæða.
5. Á því ári þegar nýjar eignir eru teknar í notkun getur félagið valið að fyrna þær í hlutfalli við notkun á árinu í stað fullrar árlegrar fyrningar skv. [ 34. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt]. 1) Þrátt fyrir ákvæði [ 35. og 42. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt], 1) skal félaginu heimilt að fyrna eignir sínar að fullu.
6. Í stað fasteignaskatts skv. II. kafla laga nr. 4/1995, um tekjustofna sveitarfélaga, með áorðnum breytingum, og sérstaks fasteignaskatts á fasteignir, sem nýttar eru til verslunarreksturs eða skrifstofuhalds, samkvæmt bráðabirgðaákvæði sömu laga, sem og sköttum eða gjöldum sömu eða að verulegu leyti svipaðrar tegundar sem síðar kynnu að verða lögð á til viðbótar við eða í staðinn fyrir fasteignaskatt, skal félagið greiða Hvalfjarðarstrandarhreppi og Skilmannahreppi fasteignaskatt sem skal vera 0,75% af 2.393 millj. kr., sem er áætlað verðmæti bygginga, athafnasvæðis og mannvirkja sem þarf til um 60 þús. lesta álframleiðslu á ári, miðað við byggingarvísitölu 1. desember 1996 (217,8 stig). [Þá skal félagið greiða Hvalfjarðarstrandarhreppi og Skilmannahreppi fasteignaskatt sem skal vera 0,75% af 826.444 þús. kr., sem er áætlað verðmæti bygginga sem þarf til aukinnar álframleiðslu um 30 þús. lestir, miðað við byggingarvísitölu 1. desember 1999 (236,6 stig).] 5) [Þá skal félagið greiða Hvalfjarðarstrandarhreppi og Skilmannahreppi fasteignaskatt sem skal vera 0,75% af 6.219 millj. kr., sem er áætlað verðmæti bygginga sem þarf til aukinnar álframleiðslu um 130 þús. lestir, miðað við byggingarvísitölu í desember 2004 (304,8). Þá skal félagið greiða Hvalfjarðarstrandarhreppi og Skilmannahreppi fasteignaskatt sem skal vera 0,75% af 1.007 millj. kr., sem er áætlað verðmæti bygginga sem þarf til aukinnar álframleiðslu um 40 þús. lestir, miðað við byggingarvísitölu í desember 2004 (304,8).] 6) Fasteignaskattur skal lagður á og innheimtur fyrir sérhvert ár á grundvelli álagningarstofnsins svo sem hann er framreiknaður samkvæmt byggingarvísitölu desembermánaðar næstliðins árs. Hann skal lagður á í fyrsta sinn 1. janúar næsta ár eftir gangsetningu álbræðslunnar. [Fasteignaskattur skv. 2. málsl. skal lagður á í fyrsta sinn 1. janúar næsta ár eftir að framleiðslugetan er komin í 90 þús. lesta álframleiðslu á ári.] 5) [Fasteignaskattur skv. 3. málsl. skal lagður á í fyrsta sinn 1. janúar næsta ár eftir að framleiðslugetan er komin í u.þ.b. [220 þús. lesta] 6) álframleiðslu á ári. Fasteignaskattur skv. 4. málsl. skal lagður á í fyrsta sinn 1. janúar næsta ár eftir að framleiðslugetan er komin í u.þ.b. [260 þús. lesta] 6) álframleiðslu á ári.] 3)
7. Stimpilgjöld skulu, þegar þeirra yrði krafist í samræmi við lög nr. 36/1978, um stimpilgjald, vera 0,15% af kaup- eða leigusamningum sem útgefnir eru eða gerðir af hálfu félagsins og af fjárfestingarlánum sem félagið kann að taka í sambandi við byggingu bræðslunnar og hafnarbúnaðar, sem og af öllum stimpilskyldum skjölum sem nauðsynleg eru í sambandi við stofnun félagsins. Lán, sem tekin eru í stað fjárfestingarlána, sem og hlutabréf í félaginu, skulu undanþegin stimpilgjaldi.
8. Með samningum, sem gerðir verða innan ramma laga þessara, má ákveða að félagið skuli greiða umsamda fjárhæð til Hvalfjarðarstrandarhrepps og Skilmannahrepps í stað byggingarleyfisgjalds samkvæmt lögum nr. 54/1978 7) og gatnagerðargjalds samkvæmt lögum nr. 17/1996, um gatnagerðargjald, og umsamda fjárhæð til ríkissjóðs í stað skipulagsgjalda samkvæmt lögum nr. 19/1964. 7)
9. Samningar, sem gerðir eru samkvæmt lögum þessum, mega kveða á um meginreglur um endurskoðun skattlagningar félagsins þannig að heildarskattbyrði þess á Íslandi haldist óbreytt.
[10. Félagið skal undanþegið ákvæðum 1. og 4. tölul. 1. mgr. 14. gr. laga nr. 146/1996, um öryggi raforkuvirkja, neysluveitna og raffanga.
11. Hafnarsjóði Grundartangahafnar er heimilt að gera sérstakan samning um vörugjöld með öðrum hætti en fram kemur í hafnalögum, nr. 23/1994, með síðari breytingum, sbr. hafnarreglugerð og hafnagjaldskrá sem settar eru á grundvelli þeirra.] 3)
[12. Félagið skal undanþegið breytingum sem kunna að verða á ákvæðum um frádrátt vaxtakostnaðar í lögum um tekjuskatt eftir undirritun samninga skv. 1. gr.] 2)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1)L. 129/2004, 122. gr. 2)L. 157/2006, 2. gr. 3)L. 85/2003, 3. gr. 4)Felld úr gildi með l. 60/1997. 5)L. 12/2000, 1. gr. 6)L. 69/2005, 1. gr. 7)Nú l. 73/1997.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1)L. 129/2004, 123. gr.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1)L. 157/2006, 3. gr.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1)L. 126/2011, 242. gr. 2)Rg. 1018/2010, sbr. 1055/2010. 3)L. 151/2009, 3. gr.