Lagasafn. Íslensk lög 12. apríl 2024. Útgáfa 154b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um skipti á upplýsingum um tæknilegar reglur um vörur og fjarþjónustu
2000 nr. 57 19. maí
Ferill málsins á Alþingi. Frumvarp til laga.
Tóku gildi 26. maí 2000. EES-samningurinn: II. eða XI. viðauki tilskipun 98/34/EB. Breytt með: L. 76/2002 (tóku gildi 17. maí 2002). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við utanríkisráðherra eða utanríkisráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna hér.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1)L. 76/2002, 37. gr.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1. Tæknilegar viðskiptahindranir: Hindranir í milliríkjaviðskiptum sem stafa af mismunandi tæknilegum reglum í einstökum ríkjum.
2. Tæknilegar reglur: Lög, reglugerðir eða önnur stjórnvaldsfyrirmæli sem fela í sér eða vísa beint eða óbeint til tæknilýsinga, tæknilegra krafna eða annarra krafna og eru íþyngjandi við markaðssetningu eða notkun vöru eða banna framleiðslu, innflutning, markaðssetningu eða notkun vöru. Til tæknilegra reglna í skilningi laganna teljast einnig frjálsir samningar sem stjórnvöld eru aðilar að og kveða á um að tæknilegum kröfum sé hlítt. Þá falla undir skilgreininguna tæknilegar kröfur eða aðrar kröfur sem tengjast ráðstöfunum í skatta- eða peningamálum og hafa áhrif á neyslu vara með því að hvatt er til að tilteknum tæknilegum kröfum sé hlítt. Til tæknilegra reglna í skilningi laganna teljast hins vegar ekki tæknilegar kröfur eða aðrar kröfur sem settar eru við opinber útboð eða við önnur innkaup hins opinbera eða tæknilegar reglur sem tengjast almannatryggingakerfinu.
3. Tæknilegar kröfur: Kröfur sem skilgreina þá eiginleika sem vara skal uppfylla, til dæmis varðandi gæði, afköst, öryggi eða stærð, að meðtöldum kröfum um vörumerki, íðorð, tákn, prófun og prófunaraðferðir, umbúðir, merkingu og möguleika á að meta samhæfi. Til tæknilegra krafna teljast einnig kröfur varðandi framleiðsluferli og framleiðsluaðferðir.
4. Aðrar kröfur: Kröfur sem ekki eru tæknilegar kröfur en eru gerðar til vöru og hafa áhrif á feril hennar eftir að hún hefur verið sett á markað, svo sem skilyrði varðandi notkun, endurvinnslu, endurnýtingu eða vörslu, ef þessar kröfur geta haft afgerandi áhrif á samsetningu, eðli eða markaðssetningu vörunnar.
5. Vörur: Allar framleiðsluafurðir iðnaðar, allar landbúnaðar- og fiskafurðir.
6. Tæknilegar reglur um fjarþjónustu: Tæknilegar reglur um uppsetningu og starfrækslu fjarþjónustu, einkum ákvæði um þann sem veitir þjónustuna, þjónustuna sjálfa og viðtakanda hennar og eru íþyngjandi við markaðssetningu, uppsetningu eða notkun slíkrar þjónustu.
7. Fjarþjónusta: Þjónusta sem innt er af hendi gegn þóknun og veitt:
a. úr fjarlægð, þ.e. án þess að aðilar séu staddir á sama stað á sama tíma,
b. rafrænt, þ.e. þjónustan er send og móttekin með notkun rafbúnaðar sem ætlaður er til vinnslu og geymslu gagna og er algerlega send, flutt og móttekin um þráð eða þráðlaust, um ljósleiðara eða með öðrum rafsegulleiðum,
c. að beiðni viðtakandans, þ.e. þjónustan er veitt þannig að gögn eru send að beiðni viðtakandans.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1)L. 126/2011, 303. gr.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
a. eingöngu framkvæmir gerðir sem vísað er til í ákvörðunum sameiginlegu EES-nefndarinnar,
b. uppfyllir skuldbindingar vegna alþjóðlegra samninga þar sem stefnt er að því að samþykkja almennar tæknilegar reglugerðir á vettvangi EES-samningsins,
c. færir sér í nyt öryggisákvæði í bindandi gerðum EES-samningsins,
d. byggist á Rapex-tilkynningarkerfinu um hættulega vöru á markaði í samræmi við ákvæði laga nr. 134/1995, um öryggi vöru og opinbera markaðsgæslu,
e. sett er í þeim tilgangi einum að fullnægja dómum sem EFTA-dómstóllinn fellir og dómum sem nefndir eru í 6. gr. samningsins um Evrópska efnahagssvæðið og 3. gr. samningsins um Eftirlitsstofnun EFTA og EFTA-dómstólinn,
f. sett er í þeim tilgangi einum að breyta tæknilegri reglu í samræmi við athugasemdir Eftirlitsstofnunar EFTA með það í huga að ryðja viðskiptahindrunum úr vegi.
![](/lagas/hk.jpg)
1)L. 126/2011, 303. gr.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)
1)L. 126/2011, 303. gr. 2)Rg. 557/2017. Rg. 440/2024.
![](/lagas/sk.jpg)
![](/lagas/hk.jpg)