Lagasafn. Íslensk lög 12. apríl 2024. Útgáfa 154b. Prenta í tveimur dálkum.
Lög um ættleiðingarstyrki
2006 nr. 152 15. desember
Ferill málsins á Alþingi.
Frumvarp til laga.
Tóku gildi 1. janúar 2007. Breytt með: L. 162/2010 (tóku gildi 1. jan. 2011). L. 126/2011 (tóku gildi 30. sept. 2011).
Ef í lögum þessum er getið um ráðherra eða ráðuneyti án þess að málefnasvið sé tilgreint sérstaklega eða til þess vísað, er átt við
félags- og vinnumarkaðsráðherra eða
félags- og vinnumarkaðsráðuneyti sem fer með lög þessi. Upplýsingar um málefnasvið ráðuneyta skv. forsetaúrskurði er að finna
hér.
I. kafli.
Almenn ákvæði.
1. gr.
Gildissvið.
![](/lagas/hk.jpg)
Lög þessi taka til fjárstyrkja úr ríkissjóði til kjörforeldra sem ættleitt hafa erlent barn eða börn í samræmi við lög um ættleiðingar. Lög þessi taka ekki til alþjóðlegra fjölskylduættleiðinga.
II. kafli.
Stjórnsýsla.
2. gr.
Yfirstjórn.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ráðherra]
1) fer með yfirstjórn ættleiðingarstyrkja samkvæmt lögum þessum.
1)L. 126/2011, 442. gr.
3. gr.
Framkvæmdaraðili.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ráðherra]
1) ákveður með reglugerð hvaða aðila hann felur framkvæmd laga þessara.
![](/lagas/hk.jpg)
Kostnaður vegna ættleiðingarstyrkja í lögum þessum greiðist úr ríkissjóði samkvæmt fjárlögum hverju sinni.
1)L. 162/2010, 34. gr.
4. gr.
Kæruheimild.
![](/lagas/hk.jpg)
Ákvörðun um synjun ættleiðingarstyrks og leiðréttingu á greiðslum skv. 8. gr. er heimilt að kæra til [ráðherra].
1) Um kæru gilda ákvæði VII. kafla
stjórnsýslulaga, nr. 37/1993.
1)L. 162/2010, 34. gr.
III. kafli.
Greiðsla ættleiðingarstyrks.
5. gr.
Greiðsla og skilyrði styrks.
![](/lagas/hk.jpg)
Ættleiðingarstyrkur er eingreiðsla sem er greidd út samkvæmt umsókn kjörforeldra þegar erlend ættleiðing hefur verið staðfest hér á landi eða ættleiðingarleyfi hefur verið gefið út hér í samræmi við ákvæði laga um ættleiðingar.
![](/lagas/hk.jpg)
Kjörforeldrar sem hafa fengið útgefið forsamþykki í samræmi við lög um ættleiðingar eiga einir rétt á ættleiðingarstyrk. Þessi réttur er ekki framseljanlegur.
6. gr.
Umsókn um styrk.
![](/lagas/hk.jpg)
Kjörforeldrar skulu sækja um ættleiðingarstyrk á þar til gerðum eyðublöðum. Sækja skal um styrk innan sex mánaða frá því að erlend ættleiðing er staðfest hér á landi eða ættleiðingarleyfi gefið út hér í samræmi við lög um ættleiðingar. Réttur til ættleiðingarstyrks fellur niður að þessum tíma liðnum.
![](/lagas/hk.jpg)
Ákveða skal með reglugerð sem [ráðherra]
1) setur hvaða gögn skuli fylgja með umsókn um ættleiðingarstyrk.
1)L. 162/2010, 34. gr.
7. gr.
Fjárhæð styrks.
![](/lagas/hk.jpg)
Fjárhæð ættleiðingarstyrks nemur 480.000 kr. Fjárhæð styrksins skal endurskoðuð í tengslum við afgreiðslu fjárlaga á tveggja ára fresti. [Ráðherra]
1) setur í reglugerð
2) ákvæði um endurskoðaða fjárhæð styrksins.
![](/lagas/hk.jpg)
Ef kjörforeldrar hafa ættleitt fleiri en eitt barn samtímis er veittur styrkur vegna hvers barns umfram eitt sem nemur 20% af fjárhæð skv. 1. mgr.
1)L. 162/2010, 34. gr. 2)Rg. 950/2007, sbr. 1198/2008 og 1467/2023.
8. gr.
Leiðrétting á greiðslum.
![](/lagas/hk.jpg)
Hafi styrkþegi ranglega fengið ættleiðingarstyrk skal hann endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var.
IV. kafli.
Ýmis ákvæði.
9. gr.
Reglugerð.
![](/lagas/hk.jpg)
[Ráðherra]
1) setur reglugerð
2) um nánari framkvæmd laga þessara.
1)L. 162/2010, 34. gr. 2)Rg. 950/2007, sbr. 1198/2008.
10. gr.
Gildistaka.
![](/lagas/hk.jpg)
Lög þessi öðlast gildi 1. janúar 2007.
![](/lagas/hk.jpg)
Rétt til styrks samkvæmt lögum þessum eiga kjörforeldrar barna sem ættleidd eru eftir gildistöku laganna.