8.3.2024

Aðalmaður og varamaður taka sæti

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir tekur sæti á ný á Alþingi mánudaginn 11. mars. Þá víkur varaþingmaður hennar Katrín Sigríður J. Steingrímsdóttir af þingi.

Jafnframt taka Brynja Dan Gunnarsdóttir, Kári Gautason og Hákon Hermannsson sæti á Alþingi sem varamenn fyrir Ásmund Einar Daðason, Jódísi Skúladóttur og Bergþór Ólason mánudaginn 11. mars.