11.3.2022

Aðalmaður og varamenn taka sæti

Mánudaginn 14. mars tekur Halldóra Mogensen sæti á ný á Alþingi og víkur þá varaþingmaður hennar, Lenya Rún Taha Karim, af þingi. Mánudaginn 14. mars taka Viktor Stefán Pálsson, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir og Friðjón R. Friðjónsson sæti á Alþingi sem varaþingmenn fyrir Oddnýju G. Harðardóttur, Jóhann Friðrik Friðriksson og Hildi Sverrisdóttur.