18.11.2022

Aðalmenn og varamaður taka sæti

Laugardaginn 19. nóvember tekur Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sæti á ný á Alþingi og víkur þá varaþingmaður hennar, Friðjón R. Friðjónsson af þingi. Mánudaginn 21. nóvember taka Bergþór Ólason, Bryndís Haraldsdóttir, Logi Einarsson, Svandís Svavarsdóttir og Vilhjálmur Árnason sæti á ný á Alþingi og
víkja þá varaþingmenn þeirra, Högni Elfar Gylfason, Arnar Þór Jónsson, Eydís Ásbjörnsdóttir, Daníel E. Arnarsson og Björgvin Jóhannesson af þingi. Mánudaginn 21. nóvember tekur René Biasone sæti á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Steinunni Þóru Árnadóttur.