15.3.2024

Aðalmenn og varamenn taka sæti

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir tekur sæti á ný á Alþingi föstudaginn 15. mars og víkur þá varamaður hennar Eva Sjöfn Helgadóttir. Bergþór Ólason, Ásmundur Einar Daðason og Jódís Skúladóttir taka sæti á ný á Alþingi mánudaginn 18. mars og víkja þá varamenn þeirra, Hákon Hermannsson, Brynja Dan Gunnarsdóttir og Kári Gautason. 

Þá taka Rafn Helgason, Jón Steindór Valdimarsson, Kristinn Rúnar Tryggvason og Sigurjón Þórðarson sæti á Alþingi mánudaginn 18. mars sem varamenn fyrir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, Ingibjörgu Isaksen og Eyjólf Ármannsson. 

Loks tekur Halldóra K. Hauksdóttir sæti á Alþingi þriðjudaginn 19. mars sem varamaður fyrir Líneik Önnu Sævarsdóttur.