12.4.2024

Aðalmenn og varamenn taka sæti

Hanna Katrín Friðriksson, Eyjólfur Ármannsson og Eva Dögg Davíðsdóttir taka sæti á ný á Alþingi mánudaginn 15. apríl. Þá víkja varamenn þeirra, María Rut Kristinsdóttir, Sigurjón Þórðarson og René Biasone, af þingi.

Indriði Ingi Stefánsson tekur sæti á Alþingi sama dag sem varamaður fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur.

Katrín Sif Árnadóttir tekur sæti á Alþingi sem varamaður fyrir Jakob Frímann Magnússon þriðjudaginn 16. apríl.