11.2.2022

Aðalmenn og varamenn taka sæti

Mánudaginn 14. febrúar taka Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir og Diljá Mist Einarsdóttir sæti á ný á Alþingi og víkja þá varaþingmenn þeirra, Kári Gautason, Thomas Möller, Halldór Auðar Svansson og Kjartan Magnússon af þingi.

Þá tekur Eva Dögg Davíðsdóttir sæti sem varaþingmaður fyrir Steinunni Þóru Árnadóttur og Jónína Björk Óskarsdóttir tekur sæti fyrir Guðmund Inga Kristinsson.