21.2.2022

Aðalmenn og varamenn taka sæti

Mánudaginn 21. febrúar taka Guðmundur Ingi Kristinsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sæti á ný á Alþingi og víkja þá varamenn þeirra, Jónína Björk Óskarsdóttir og Anna Kolbrún Árnadóttir, af þingi.

Þá tekur Berglind Harpa Svavarsdóttir sæti sem varaþingmaður fyrir Njál Trausta Friðbertsson, Lenya Rún Taha Karim tekur sæti fyrir Andrés Inga Jónsson, Kolbrún Baldursdóttir fyrir Tómas A. Tómasson og Friðrik Már Sigurðsson fyrir Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur.