18.3.2022

Aðalmenn og varamenn taka sæti

Mánudaginn 21. mars taka Hildur Sverrisdóttir og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sæti á ný á Alþingi og víkja þá varaþingmenn þeirra, Friðjón R. Friðjónsson og Eva Sjöfn Helgadóttir, af þingi.

Þá taka Dagbjartur Gunnar Lúðvíksson, Jónína Björk Óskarsdóttir og Þorgrímur Sigmundsson sæti á Alþingi sem varaþingmenn fyrir Hönnu Katrínu Friðriksson, Guðmund Inga Kristinsson og Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Ágústa Ágústsdóttir varaþingmaður mun víkja af þingi.