4.4.2022

Aðalmenn og varamenn taka sæti

Mánudaginn 4. apríl taka Ágúst Bjarni Garðarsson, Halldóra Mogensen, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir og Logi Einarsson sæti á ný á Alþingi og víkja þá varaþingmenn þeirra Kristín Hermannsdóttir, Lenya Rún Taha Karim, Iða Marsibil Jónsdóttir og Hilda Jana Gísladóttir af þingi.

Þá tekur Aðalsteinn Haukur Sverrisson sæti á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Lilju Alfreðsdóttur og Daníel E. Arnarson tekur sæti fyrir Svandísi Svavarsdóttur.