29.12.2021

Aðalmenn taka sæti

Miðvikudaginn 29. desember hafa eftirtaldir þingmenn tekið sæti á ný á Alþingi: Andrés Ingi Jónsson, Birgir Ármannsson, Bjarni Benediktsson, Björn Leví Gunnarsson, Guðbrandur Einarsson, Hanna Katrín Friðriksson, Oddný G. Harðardóttir, Óli Björn Kárason, Sigmar Guðmundsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir og Þorgerður K. Gunnarsdóttir. 

Víkja þá varamenn þeirra; Lenya Rún Taha Karim, Friðjón R. Friðjónsson, Sigþrúður Ármann, Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir, Þórunn Wolfram Pétursdóttir, Daði Már Kristófersson, Viktor Stefán Pálsson, Arnar Þór Jónsson, Thomas Möller, Anna Kolbrún Árnadóttir, Jón Steindór Valdimarsson og Elín Anna Gísladóttir, af þingi.