27.2.2023

Aðalmenn og varamaður taka sæti

Þingmennirnir Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Helga Vala Helgadóttir, Björn Leví Gunnarsson, Andrés Ingi Jónsson og Jódís Skúladóttir taka sæti á ný á Alþingi mánudaginn 27. febrúar og víkja þá varaþingmenn þeirra, Friðrik Már Sigurðsson, Magnús Árni Skjöld Magnússon, Halldór Auðar Svansson, Lenya Rún Taha Karim og Kári Gautason af þingi. Þá tekur tekur Brynjar Níelsson sæti sem varaþingmaður fyrir Guðlaug Þór Þórðarson.