1.8.2019

Afgreiðsla forsætisnefndar á Klaustursmálinu

Afgreiðsla forsætisnefndar á erindi um hátterni þingmanna á veitingastofunni Klaustri

Forsætisnefnd Alþingis, skipuð 7. og 8. varaforseta, hefur haft til umfjöllunar erindi átta þingmanna, dags. 3. desember 2018, um meint brot þingmannanna Önnu Kolbrúnar Árnadóttur, Bergþórs Ólasonar, Gunnars Braga Sveinssonar, Karls Gauta Hjaltasonar, Ólafs Ísleifssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar á siðareglum fyrir alþingismenn. Lýtur erindið að ummælum framangreindra þingmanna á veitingastofunni Klaustri 20. nóvember 2018 og mögulegu broti þeirra á siðareglum fyrir alþingismenn.

Eins og kunnugt er var það niðurstaða ráðgefandi siðanefndar í áliti frá 25. mars 2019 að hátterni þingmannanna sex á veitingastofunni Klaustri félli undir gildissvið siðareglna fyrir alþingismenn. Með bréfum til þingmannanna sex, hvers um sig, 15. apríl 2019 tilkynnti forsætisnefnd að hún teldi rétt að leggja niðurstöðu siðanefndarinnar til grundvallar við framhald málsins. Í bréfunum var hátterni hvers þingmanns um sig afmarkað og þeim veittur kostur á að setja fram athugasemdir við grundvöll málsins.

Með bréfi, dags. 13. maí 2019, til siðanefndar Alþingis ákvað forsætisnefnd að óska eftir að nefndin léti í té ráðgefandi álit sitt á því hvort þingmennirnir sex hefðu, hver um sig, brotið gegn siðareglum fyrir alþingismenn eins og hátterni þeirra hefði verið afmarkað í bréfum frá 15. apríl 2019 og að teknu tilliti til athugasemda þingmannanna sem þá höfðu borist.

Þann 5. júlí sl. barst forsætisnefnd álit ráðgefandi siðanefndar . Niðurstaða siðanefndar er að þingmennirnir Bergþór Ólason og Gunnar Bragi Sveinsson hafi brotið gegn c- og d-lið 1. mgr. 5. gr. og 7. og 8. gr. siðareglna fyrir alþingismenn. Ekki var talið að þingmennirnir Anna Kolbrún Árnadóttir, Karl Gauti Hjaltason, Ólafur Ísleifsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hefðu gerst brotleg við siðareglurnar. Þann 8. júlí sl. gaf forsætisnefndin þingmönnunum kost á að bregðast við áliti siðanefndar og bárust andmæli þeirra 26. júlí sl.

Forsætisnefnd hefur á fundi sínum í dag, 1. ágúst 2019, lokið meðferð sinni á málinu með áliti. Það er niðurstaða forsætisnefndar, sbr. 3. mgr. 18. gr. siðareglna fyrir alþingismenn, að fallast beri á mat siðanefndar frá 5. júlí 2019.

 

Fylgiskjöl:

Bréf Önnu Kolbrúnar Árnadóttur, Bergþórs Ólasonar, Gunnars Braga Sveinssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar til forsætisnefndar, dags. 26. júlí 2019.

Bréf Önnu Kolbrúnar Árnadóttur til forsætisnefndar, dags. 26. júlí 2019.

Bréf Bergþórs Ólasonar til forsætisnefndar, dags. 26. júlí 2019.

Bréf Gunnars Braga Sveinssonar til forsætisnefndar, dags. 16. júlí 2019 (móttekið 26. júlí 2019).

Bréf Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar til forsætisnefndar, dags. 26. júlí 2019.

Bréf skrifstofu Alþingis til Önnu Kolbrúnar Árnadóttur, Bergþórs Ólasonar, Gunnar Braga Sveinssonar, Karls Gauta Hjaltasonar, Ólafs Ísleifssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, dags. 8. júlí 2019.

Álit ráðgefandi nefndar skv. 16. gr. siðareglna alþingismanna í máli nr. 3/2019, dags. 5. júlí 2019.

Bréf Karls Gauta Hjaltasonar og Ólafs Ísleifssonar til forsætisnefndar, dags. 5. júlí 2019.

Bréf Karls Gauta Hjaltasonar og Ólafs Ísleifssonar til forsætisnefndar, dags. 3. maí 2019.

Bréf Önnu Kolbrúnar Árnadóttur, Bergþórs Ólasonar, Gunnars Braga Sveinssonar og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar til forsætisnefndar, móttekið 3. maí 2019.

Bréf forsætisnefndar til Önnu Kolbrúnar Árnadóttur, dags. 15. apríl 2019.

Bréf forsætisnefndar til Bergþórs Ólasonar, dags. 15. apríl 2019.

Bréf forsætisnefndar til Gunnars Braga Sveinssonar, dags. 15. apríl 2019.

Bréf forsætisnefndar til Karls Gauta Hjaltasonar, dags. 15. apríl 2019.

Bréf forsætisnefndar til Ólafs Ísleifssonar, dags. 15. apríl 2019.

Bréf forsætisnefndar til Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, dags. 15. apríl 2019.

Álit ráðgefandi nefndar skv. 16. gr. siðareglna fyrir alþingismenn í máli nr. 1/2018, dags. 25. mars 2019.