25.5.2009

Aðstoðarmenn þingmanna

Forsætisnefnd Alþingis samþykkti í morgun tillögu forseta Alþingis, Ástu R. Jóhannesdóttur, um að svokallað „aðstoðarmannakerfi“ fyrir landsbyggðarþingmenn verði lagt niður, a.m.k. tímabundið, af fjárhagsástæðum. Jafnframt var samþykkt að „aðstoðarmannakerfið“ verði endurmetið með hliðsjón af reynslunni sem fengist hefur af því.

Samningar við aðstoðarmenn frá síðasta kjörtímabili féllu niður samkvæmt ákvæðum þeirra við þingrof og kosningar.