9.10.2014

Aðalfundur Hins íslenska þjóðvinafélags

Aðalfundur Hins íslenska þjóðvinafélags var haldinn í Alþingishúsinu, fundarsal Alþingis, fimmtudags 9. október 2014.
Hið íslenska þjóðvinafélag var stofnað af alþingismönnum 19. ágúst 1871. Í lögum félagsins er það ákvæði að aðalfundir þess skuli haldnir á Alþingi annað hvert ár. Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, setti fundinn og stjórnaði honum. Guðbjartur Hannesson var fundarritari.

Dr. Guðrún Kvaran fv. orðabókarritstjóri, varaforseti Þjóðvinafélagsins, sat fundinn af hálfu forstöðumanna þess. Hún skýrði frá störfum félagsins frá síðasta aðalfundi og gerði grein fyrir reikningum þess fyrir árin 2011–2013. Voru reikningarnir samþykktir.

Að lokum fór fram kosning stjórnar félagsins og endurskoðenda þess. Dr. Guðrún Kvaran fyrrverandi orðabókarritstjóri var kosin forseti félagsins, Gunnar Stefánsson útvarpsmaður varaformaður og meðstjórnendur þau, Karl M. Kristjánsson, aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis, dr. Ármann Jakobsson, prófessor, og Björk Ingimundardóttir fyrrverandi skjalavörður. Endurskoðendur voru kjörnir Friðrik Ólafsson, fyrrverandi skrifstofustjóri Alþingis, og Sigurður Þórðarson, fyrrverandi ríkisendurskoðandi.

Þjóðvinafélagið gefur út ársritin Almanak og Andvara svo sem það hefur gert frá stofnun þess.