22.11.2021

Varamenn taka sæti

Þriðjudaginn 23. nóvember tekur Kári Gautason sæti á Alþingi sem varamaður fyrir Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur. Einnig tekur Anna Kolbrún Árnadóttir sæti á Alþingi sem varamaður fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson. Þá tekur María Rut Kristinsdóttir sæti sem varamaður fyrir Hönnu Katrínu Friðriksson. Loks tekur Indriði Ingi Stefánsson sæti á Alþingi sem varamaður fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur.