7.10.2022

Varamenn taka sæti

Mánudaginn 10. október tekur Iða Marsibil Jónsdóttir sæti á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Höllu Signýju Kristjánsdóttur, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir tekur sæti fyrir Jódísi Skúladóttur, Lilja Rafney Magnúsdóttir tekur sæti fyrir Bjarna Jónsson, Elsa Lára Arnardóttir fyrir Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur, Wilhelm Wessman fyrir Ingu Sæland og Eva Sjöfn Helgadóttir fyrir Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur. Einnig taka sæti Teitur Björn Einarsson fyrir Harald Benediktsson, Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir fyrir Jóhann Friðrik Friðriksson og Anna Kolbrún Árnadóttir fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson.