17.2.2023

Varamenn taka sæti

Jóhann Páll Jóhannsson tekur sæti á ný á Alþingi mánudaginn 20. febrúar og víkur þá Dagbjört Hákonardóttir af þingi. Þá tekur Halldór Auðar Svansson sæti sem varaþingmaður fyrir Björn Leví Gunnarsson, Viðar Eggertsson tekur sæti fyrir Kristrúnu Frostadóttur og víkur þá Rósa Björk Brynjólfsdóttir af þingi. Kári Gautason tekur sæti fyrir Jódísi Skúladóttur, Magnús Árni Skjöld Magnússon fyrir Helgu Völu Helgadóttur, Friðrik Már Sigurðsson fyrir Lilju Rannveigu Sigurgeirsdóttur og Lenya Rún Taha Karim fyrir Andrés Inga Jónsson.