30.3.2023

Varamenn taka sæti

Katrín Sif Árnadóttir tekur sæti á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Jakob Frímann Magnússon fimmtudaginn 30. mars. Þá tekur Hilda Jana Gísladóttir sæti fyrir Loga Einarsson og Thomas Möller fyrir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir tekur sæti fyrir Hildi Sverrisdóttur, Brynjar Níelsson fyrir Diljá Mist Einarsdóttur, Berglind Harpa Svavarsdóttir fyrir Njál Trausta Friðbertsson og Eva Sjöfn Helgadóttir fyrir Gísla Rafn Ólafsson. Þá tekur Lenya Rún Taha Karim sæti á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Halldóru Mogensen.