27.1.2023

Varaþingmaður og aðalmenn taka sæti mánudaginn 30. janúar

Mánudaginn 30. janúar taka Björn Leví Gunnarsson og Þórhildur Sunna Ævarsdóttir sæti á ný á Alþingi og víkja þá varaþingmenn þeirra, Halldór Auðar Svansson og Indriði Ingi Stefánsson, af þingi. Þá tekur Rósa Björk Brynjólfsdóttir sæti á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Kristrúnu Frostadóttur.