1. fundur
framtíðarnefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 19. september 2023 kl. 11:30


Mætt:

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS) formaður, kl. 11:30
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 11:30
Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 11:30
Logi Einarsson (LE), kl. 11:30
Orri Páll Jóhannsson (OPJ), kl. 11:30
Ragnar Sigurðsson (RS) fyrir Njál Trausta Friðbertsson (NTF), kl. 11:30
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 11:30

Steinunn Þóra Árnadóttir boðaði forföll. Ágúst Bjarni Garðarsson og Sigmar Guðmundsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Anna Sigurborg Ólafsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 11:30
Fundargerð 13. fundar var samþykkt.

Fundi var frestað frá 12:00-12:20

2) Gervigreind og lýðræði Kl. 12:20
Elfa Ýr Gylfadóttir, framkvæmdastjóri fjölmiðlanefndar og Þorgeir Ólafsson, fyrrverandi starfsmaður mennta- og menningarmálaráðuneytis voru fulltrúar Íslands í norrænni hugveitu um tækni og lýðræði á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og fjölluðu þau um gervigreind og lýðræði.

3) Önnur mál Kl. 12:55
Formaður greindi frá för formannateymis framtíðarnefndar á Heimsþing framtíðarnefnda þjóðþinga í Uruguay, 25.-27. september. Viðfangsefni heimsþingsins er hlutverk þjóðþinga er varðar gervigreind og framtíð lýðræðis.
Greint var frá heimsókn framtíðarnefndar finnska þingsins til Íslands 19.-22 nóvember nk.

Fundi slitið kl. 13:00