3. fundur
framtíðarnefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 7. nóvember 2023 kl. 11:30


Mætt:

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS) formaður, kl. 11:30
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 11:30
Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 11:30
Logi Einarsson (LE), kl. 11:30
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 11:30
Orri Páll Jóhannsson (OPJ), kl. 11:30
Sigmar Guðmundsson (SGuðm), kl. 11:30
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 11:30

Ágúst Bjarni Garðarsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Anna Sigurborg Ólafsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 11:30
Fundargerðir 1. og 2. fundar voru samþykktar.

2) Heimsókn framtíðarnefndar finnska þingsins til Íslands 19.-22. nóvember Kl. 11:35
Framtíðarnefnd finnska þingsins fer í fræðsluferð á hverju kjörtímabili til eins Evrópuríkis og í þetta sinn varð Ísland fyrir valinu. Framtíðarnefnd Alþingis fagnar þeirri ákvörðun og fór formaður yfir dagskrá heimsóknar finnsku framtíðarnefndarinnar til Íslands.

3) Starfsáætlun 2024 Kl. 11:55
Starfsáætlun framtíðarnefndar fyrir árið 2024 var samþykkt samhljóða.

4) Önnur mál Kl. 13:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:00