4. fundur
framtíðarnefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 21. nóvember 2023 kl. 11:30


Mætt:

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS) formaður, kl. 11:30
Berglind Harpa Svavarsdóttir (BHS) fyrir Berglindi Ósk Guðmundsdóttur (BGuðm), kl. 11:30
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 11:30
Jakob Frímann Magnússon (JFM), kl. 11:30
Logi Einarsson (LE), kl. 11:30
Orri Páll Jóhannsson (OPJ), kl. 11:30
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 11:30

Njáll Trausti Friðbertsson og Sigmar Guðmundsson boðuðu forföll. Ágúst Bjarni Garðarsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson voru fjarverandi.

Nefndarritari: Anna Sigurborg Ólafsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 11:30
Fundargerð 3. fundar var samþykkt.

2) Heimsókn framtíðarnefndar finnska þingsins 19.-22. nóvember Kl. 11:35
Í ljósi jarðhræringa á Reykjanesskaga aflýsti finnska framtíðarnefndin heimsókn sinni til Íslands. Stefnir nefndin að því að koma á nýju ári.

3) Starfsáætlun 154. löggjafarþings Kl. 11:40
Í starfsáætlun framtíðarnefndar fyrir árið 2024 er áætlað að halda fimm málstofur um gervigreind og lýðræði. Markmið nefndarinnar er að eiga samtöl við helstu sérfræðinga og ræða framtíðaráskoranir og hugsanlegar sviðsmyndir en það að skoða mismunandi sviðsmyndir auðveldar ákvarðanatöku til framtíðar litið. Mun fyrsta málstofan verða 1. desember þar sem fjallað verður um stöðu og þróun gervigreindar.
Þátttakendur málstofunnar sem fylgjast með í streymi geta sent inn fyrirspurnir á netfangið framtid@althingi.is. Með þessu móti vill framtíðarnefndin opna starf þingsins og eiga samtal við þjóðina.
Fjallaði nefndin um innihald og skipulag málstofana.

4) Önnur mál Kl. 13:00
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 13:00