14. fundur
á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 25. október 2021 kl. 10:30


Mætt:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 10:30
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 10:30
Diljá Mist Einarsdóttir (DiljE), kl. 10:30
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 10:30
Inga Sæland (IngS), kl. 10:30
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 10:30
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:30
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 10:30
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 10:30
Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv), kl. 10:30

Inga Sæland vék af fundi kl. 12:05

Nefndarritarar:
Inga Skarphéðinsdóttir
Þórhallur Vilhjálmsson

Gestir tóku þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað. Samtöl við gesti fundarins voru hljóðrituð og tekin upp í mynd. Hljóðritunin verður skrifuð upp í vinnuskjal til að tryggja aðgang þingmanna að öllum gögnum málsins svo þeir geti, hver fyrir sig, tekið ákvörðun þegar Alþingi fjallar um gildi kosninganna.

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:30
Fundargerðir 12. og 13. fundar voru samþykktar.

2) Undirbúningur fyrir rannsókn kjörbréfa Kl. 10:31
Nefndin fékk á sinn fund Katrínu Oddsdóttur, Rúnar Björn Herrera Þorkelsson, Þorvald Gylfason og Sigurð Hrein Sigurðsson.

Nefndin ræddi málið.

Hlé var gert á fundi kl. 12:05-13:00.

Því næst fékk nefndin á sinn fund Ólaf Jónsson.

Að lokum mættu á fund nefndarinnar Sveinn Flóki Guðmundsson og Þorgrímur Einar Guðbjartsson.

3) Störf nefndarinnar Kl. 13:52
Nefndin ræddi verkefni og málsmeðferð nefndarinnar sem og fyrirkomulag næstu funda.

Nefndin hefur móttekið í trúnaði bréf lögreglustjórans á Vesturlandi, dags. 22. október 2021, ásamt fylgiskjölum. Ákvörðun um aðgengi að gögnum frestað.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 14:18