30. fundur
á 152. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 17. nóvember 2021 kl. 11:00


Mætt:

Birgir Ármannsson (BÁ) formaður, kl. 11:00
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 11:00
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 11:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 11:40
Inga Sæland (IngS), kl. 11:00
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 11:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 11:00
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 11:00
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 11:00
Þórunn Sveinbjarnardóttir (ÞSv), kl. 11:00

Inga Sæland tók þátt í fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. 1. mgr. 17. gr. þingskapa, sbr. einnig 1. mgr. 48. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis.

Eftir hlé á fundi mætti Svandís Svavarsdóttir kl. 13:25.

Nefndarritarar:
Elisabeth Patriarca Kruger
Þórhallur Vilhjálmsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 11:00
Fundargerð 29. fundar var samþykkt.

2) Undirbúningur fyrir rannsókn kjörbréfa Kl. 11:00
Nefndin fór yfir gögn málsins. Nefndin samþykkti m.a. að birta bréf lögreglunnar á Vesturlandi frá 11. nóvember að undanskildu því trúnaðargagni sem fylgdi bréfinu.

Nefndin ræddi drög að greinargerð nefndarinnar.

Hlé var gert á fundi kl. 12:35-13:15.

Nefndin hélt áfram að ræða drög að greinargerð nefndarinnar.

Nefndin ræddi verkefni og málsmeðferð nefndarinnar.

Nefndin ræddi fyrirkomulag næsta fundar.

3) Störf nefndarinnar Kl. 14:55
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 14:55