27. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 12. desember 2023 kl. 10:00


Mætt:

Eyjólfur Ármannsson (EÁ) 1. varaformaður, kl. 10:00
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH) 2. varaformaður, kl. 10:00
Birgir Þórarinsson (BirgÞ), kl. 10:00
Dagbjört Hákonardóttir (DagH), kl. 10:00
Halldóra Mogensen (HallM), kl. 10:00
Jódís Skúladóttir (JSkúl), kl. 10:00
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 10:00
Sigmar Guðmundsson (SGuðm), kl. 10:00

Bergþór Ólason var fjarverandi.
Bryndís Haraldsdóttir var fjarverandi vegna þingstarfa erlendis.
Halldóra Mogensen tók þátt í fundinum með fjarfundarbúnaði skv. heimild í 1. mgr. 17. gr. þingskapa.

Nefndarritari: Inga Valgerður Stefánsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 10:01
Fundargerðir 25. og 26. fundar voru samþykktar.

2) 234. mál - stefnumótandi aðgerðir til eflingar þekkingarsamfélagi á Íslandi til ársins 2025 Kl. 10:01
Tillaga formanns um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af öllum viðstöddum nefndarmönnum.

Að nefndaráliti meiri hluta standa Birgir Þórarinsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Jódís Skúladóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir. Bryndís Haraldsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið skv. heimild í 2.m gr. 29. gr. þingskapa.

Dagbjört Hákonardóttir og Halldóra Mogensen boðuðu minni hluta álit.

3) 349. mál - vopnalög Kl. 10:07
Nefndin fjallaði um málið.

Tillaga framsögumanns um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af Birgi Þórarinssyni, Hafdísi Hrönn Hafsteinsdóttur, Jódísi Skúladóttur og Líneik Önnu Sævarsdóttur.
Eyjólfur Ármannsson, Dagbjört Hákonardóttir og Halldóra Mogensen sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Að nefndaráliti meiri hluta standa Birgir Þórarinsson, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Jódís Skúladóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir. Bryndís Haraldsdóttir var fjarverandi við afgreiðslu málsins en ritar undir álitið skv. heimild í 2. mgr. 29. gr. þingskapa.

4) Önnur mál Kl. 11:03
Nefndin ræddi starfið framundan og fyrirkomulag næstu funda.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:18