35. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 16. janúar 2014
kl. 09:07
Mættir:
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK) formaður, kl. 09:07Páll Valur Björnsson (PVB) 1. varaformaður, kl. 09:07
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 09:33
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 09:07
Jóhanna María Sigmundsdóttir (JMS), kl. 09:07
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:07
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:07
Guðbjartur Hannesson var fjarverandi vegna annarra þingstarfa.
Helgi Hrafn Gunnarsson var fjarverandi.
Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir
Bókað:
1) Fundargerðir Kl. 10:07
Formaður kynnti fundargerðir 22 til og með 34 og voru þær samþykktar.
2) 233. mál - fjárhagsaðstoð vegna gjaldþrotaskipta Kl. 10:10
Á fund nefndarinnar komu Hanna Sigríður Gunnsteinsdóttir frá velferðarráðuneytinu, Ásta Sigrún Helgadóttir og Ólöf Marín Úlfarsdóttir frá Umboðsmanni skuldara og Þórólfur Halldórsson sýslumaður í Keflavík. Fóru þau yfir frumvarpið og svöruðu spurningum nefndarmanna.
3) Önnur mál Kl. 09:50
Vilhjálmur Árnason formaður þingmannanefndar um eflingu löggæslu kynnti tillögur nefndarinnar um skiptingu 500 milljóna króna fjárveitingar til að efla löggæsluna í landinu.
Fleira ver ekki gert.
Fundi slitið kl. 10:16