60. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 25. mars 2014 kl. 09:05


Mættir:

Páll Valur Björnsson (PVB) 1. varaformaður, kl. 09:05
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 09:05
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 09:05
Guðbjartur Hannesson (GuðbH), kl. 09:02
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 09:19
Jóhanna María Sigmundsdóttir (JMS), kl. 10:02
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 09:05
Valgerður Gunnarsdóttir (ValG) fyrir UBK, kl. 09:10
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:18

Nefndarritari: Benedikt S. Benediktsson

Bókað:

1) 246. mál - opinber skjalasöfn Kl. 09:05
Á fund nefndarinnar komu Ólafur Hjálmarsson og Magnús S. Magnússon frá Hagstofu Íslands, Eiríkur G. Guðmundsson og Njörður Sigurðsson frá Þjóðskjalasafni Íslands, Eiríkur Þorláksson frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu og Guðjón Bragason og Tryggvi Þórhallsson frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Gestirnir svöruðu spurningum nefndarmanna.

2) 351. mál - lögbann og dómsmál til að vernda heildarhagsmuni neytenda Kl. 11:46
Nefndin samþykkti að Unnur Brá Konráðsdóttir yrði framsögumaður málsins.
Ákveðið var að óska skriflegra umsagna um málið.

3) Önnur mál Kl. 11:46
Nefndin ræddi hugmyndir að dagskrárliðum fyrir næstu fundi.
Fleira var ekki gert á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 11:51