3. fundur
allsherjar- og menntamálanefndar á 143. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 10. október 2013 kl. 08:54


Mættir:

Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK) formaður, kl. 08:54
Páll Valur Björnsson (PVB) 1. varaformaður, kl. 08:54
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS) 2. varaformaður, kl. 08:54
Elsa Lára Arnardóttir (ELA), kl. 08:54
Haraldur Einarsson (HE) fyrir JMS, kl. 08:54
Helgi Hrafn Gunnarsson (HHG), kl. 10:02
Oddný G. Harðardóttir (OH) fyrir GuðbH, kl. 08:54
Svandís Svavarsdóttir (SSv), kl. 08:54
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 08:54

LínS vék af fundi kl. 10:05.
SSv vék af fundi 10.17.

Nefndarritari: Kristín Einarsdóttir

Bókað:

1) Fundargerðir Kl. 08:54
Farið var yfir fundargerð síðasta fundar og hún samþykkt til birtingar á vef nefndarinnar.

2) Markaðssetning og notkun efna til sprengiefnagerðar Kl. 08:56
Nefndin afgreiddi álit sitt.

3) Merking og rekjanleiki sprengiefna Kl. 08:58
Nefndin afgreiddi álit sitt.

4) Kynning á þingmálaskrá mennta- og menningarmálaráðherra. Kl. 09:00
Á fund nefndarinnar kom Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra. Fór hann yfir þingmálaskrá sína og svaraði spurningum nefndarmanna.

5) 6. mál - leikskóli að loknu fæðingarorlofi Kl. 10:15
Borin var upp sú tillaga að ELA yrði framsögumaður málsins. Það var samþykkt. Umsagnarfrestur til 24 október.

6) Önnur mál Kl. 10:19
Fleira var ekki rætt.

Fundi slitið kl. 10:19