40. fundur
atvinnuveganefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, fimmtudaginn 7. mars 2024 kl. 09:00


Mætt:

Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP) formaður, kl. 09:00
Birgir Þórarinsson (BirgÞ) 2. varaformaður, kl. 09:00
Dagbjört Hákonardóttir (DagH), kl. 09:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:00
Inga Sæland (IngS), kl. 09:00
Jódís Skúladóttir (JSkúl) fyrir Bjarkeyju Olsen Gunnarsdóttur (BjG), kl. 09:00
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 09:00
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:00

Ásmundur Friðriksson og Gísli Rafn Ólafsson boðuðu forföll.

Nefndarritarar:
Sigrún Rósa Björnsdóttir
Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárlið frestað.

2) 348. mál - raforkulög Kl. 09:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Sigríði Mogensen og Lárus M.K. Ólafsson frá Samtökum iðnaðarins.

3) 690. mál - veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald Kl. 09:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Ingva Má Pálsson og Þórarin Örn Þrándarson frá menningar- og viðskiptaráðuneyti.

4) 126. mál - efling félagslega hluta fiskveiðistjórnarkerfisins Kl. 10:00
Nefndin ákvað að senda málið til umsagnar með umsagnarfresti i tvær vikur og að Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir verði framsögumaður þess.

5) Önnur mál Kl. 10:05
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:15