15. fundur
atvinnuveganefndar á 150. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 5. nóvember 2019 kl. 09:00


Mættir:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 09:00
Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (AFE) 1. varaformaður, kl. 09:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 09:15
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:00
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:00
Rósa Björk Brynjólfsdóttir (RBB), kl. 09:00
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 09:00
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:05

Nefndarritari: Birgitta Kristjánsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Frestað.

2) Samkeppnisstaða innlendrar fiskvinnslu gagnvart ríkisstyrktri fiskvinnslu innan ESB: Samfélagsleg og efnahagsleg áhrif á Íslandi vegna útflutnings á óunnum fiski í gámum Kl. 09:00
Nefndin ræddi málið.

3) 231. mál - girðingarlög Kl. 09:50
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar með tveggja vikna umsagnarfresti. Nefndin samþykkti að Sigurður Páll Jónsson yrði framsögumaður málsins

4) 29. mál - jarðalög Kl. 09:51
Nefndin samþykkti að Ólafur Ísleifsson yrði framsögumaður málsins.

5) 104. mál - tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi Kl. 09:52
Nefndin samþykkti að Lilja Rafney Magnúsdóttir yrði framsögumaður málsins.

6) 117. mál - leit, rannsóknir og vinnsla kolvetnis Kl. 09:53
Nefndin samþykkti að Rósa Björk Brynjólfsdóttir yrði framsögumaður málsins.

7) 121. mál - mótun klasastefnu Kl. 09:54
Nefndin samþykkti að Halla Signý Kristjánsdóttir yrði framsögumaður málsins.

8) 163. mál - búvörulög og búnaðarlög Kl. 09:55
Nefndin samþykkti að Albertína Friðbjörg Elíasdóttir yrði framsögumaður málsins.

9) 318. mál - breyting á ýmsum lögum á sviði matvæla Kl. 09:56
Nefndin samþykkti að senda málið til umsagnar og að gefinn yrði tveggja vikna umsagnarfrestur. Nefndin samþykkti að Ásmundur Friðriksson yrði framsögumaður málsins.

10) Önnur mál Kl. 09:57
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:00