68. fundur
atvinnuveganefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn föstudaginn 14. maí 2021 kl. 09:00


Mætt:

Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM) formaður, kl. 09:00
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK) 2. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Haraldur Benediktsson (HarB), kl. 09:00
María Hjálmarsdóttir (MH), kl. 09:00
Njáll Trausti Friðbertsson (NTF), kl. 09:00
Ólafur Ísleifsson (ÓÍ), kl. 09:11
Sigurður Páll Jónsson (SPJ), kl. 09:00
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (ÞKG), kl. 09:00

Helgi Hrafn Gunnnarsson boðaði forföll.

Ólafur Ísleifsson vék af fundi kl. 10:18.

Nefndarritari: Sigrún Rósa Björnsdóttir

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárlið frestað.

2) 704. mál - breyting á ýmsum lögum á sviði fiskveiðistjórnar Kl. 09:00
Nefndin fjallaði um máli og fékk á sinn fund Heimi Örn Herbertsson frá Háskólanum í Reykjavík.

Hann gerði grein fyrir sjónarmiðum við málið og svaraði spurningum nefndarmanna.

3) 776. mál - ferðagjöf Kl. 10:08
Nefndin samþykkti að afgreiða málið til annarrar umræðu.

Allir viðstaddir nefndarmenn utan Maríu Hjálmarsdóttur, skrifuðu undir nefndarálit meiri hluta með breytingartillögu, þar af Ólafur Ísleifsson og Sigurður Páll Jónsson með fyrirvara.

Helgi Hrafn Gunnarsson og Ólafur Ísleifsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins en skrifa undir álitið í samræmi við 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis.

4) Önnur mál Kl. 10:25
Nefndin ræddi starfið framundan.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:35