6. fundur
atvinnuveganefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 12. október 2023 kl. 09:00


Mætt:

Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP) formaður, kl. 09:00
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ) 1. varaformaður, kl. 09:00
Ásmundur Friðriksson (ÁsF), kl. 09:00
Berglind Harpa Svavarsdóttir (BHS), kl. 09:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:00
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 09:00
Tómas A. Tómasson (TAT) fyrir Ingu Sæland (IngS), kl. 09:00

Óli Björn Kárason boðaði forföll.

Nefndarritari: Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Fundargerðir 4. og 5. fundar voru samþykktar.

2) Fjárhagsstaða bænda o.fl. Kl. 09:00
Nefndin ræddi fjárhagsstöðu bænda og fékk sinn fund Vigdísi Häsler, Hilmar Vilberg Gylfason, Sverri Fal Björnsson, Gunnar Þorgeirsson og Katrínu Pétursdóttur frá Bændasamtökum Íslands.

3) 99. mál - bann við hvalveiðum Kl. 10:15
Nefndin staðfesti umsagnarbeiðni sem send var út með tveggja vikna fresti þann 9. október sl. með vísan til ákvörðunar á 1. nefndarfundi 154. löggjafarþings, sbr. 2. mgr. 23. gr. starfsreglna fastanefnda Alþingis. Tillaga um að Gísli Rafn Ólafsson verði framsögumaður málsins var samþykkt.

4) Önnur mál Kl. 10:20
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:20