32. fundur
atvinnuveganefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Smiðju, þriðjudaginn 30. janúar 2024 kl. 09:00


Mætt:

Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP) formaður, kl. 09:00
Gísli Rafn Ólafsson (GRÓ) 1. varaformaður, kl. 09:15
Birgir Þórarinsson (BirgÞ) 2. varaformaður, kl. 09:00
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir (BjG), kl. 09:00
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:00
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (LRS), kl. 09:00
Magnús Árni Skjöld Magnússon (MagnM), kl. 09:00
Óli Björn Kárason (ÓBK), kl. 09:00
Tómas A. Tómasson (TAT) fyrir Ingu Sæland (IngS), kl. 09:40

Ásmundur Friðriksson boðaði forföll.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir vék af fundi kl. 10:45 og Hanna Katrín Friðriksson kl. 11:05

Nefndarritari: Ívar Már Ottason

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:00
Dagskrárlið frestað.

2) 52. mál - ættliðaskipti og nýliðun í landbúnaðarrekstri Kl. 09:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Vigdísi Häsler og Hilmar Vilberg Gylfason frá Bændasamtökum Íslands.

3) 44. mál - heildarendurskoðun á þjónustu og vaktakerfi dýralækna Kl. 09:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Vigdísi Häsler og Hilmar Vilberg Gylfason frá Bændasamtökum Íslands.

4) 51. mál - endurskoðun á lagaumhverfi fyrir smávirkjanir Kl. 09:30
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Vigdísi Häsler og Hilmar Vilberg Gylfason frá Bændasamtökum Íslands.

5) 52. mál - ættliðaskipti og nýliðun í landbúnaðarrekstri Kl. 09:55
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Steinþór Loga Arnarson frá Samtökum ungra bænda.

6) 44. mál - heildarendurskoðun á þjónustu og vaktakerfi dýralækna Kl. 10:20
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Báru Eyfjörð Heimisdóttur frá Dýralæknafélagi Íslands.

7) 51. mál - endurskoðun á lagaumhverfi fyrir smávirkjanir Kl. 10:45
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Silju Rán Steinberg Sigurðardóttur og Tryggva Þór Haraldsson frá RARIK.

Þá kom á fund nefndarinnar Sigurjón Njarðarson frá Orkustofnun.

8) Önnur mál Kl. 11:35
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:35