20. fundur
atvinnuveganefndar á 141. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 27. nóvember 2012 kl. 09:08


Mættir:

Einar K. Guðfinnsson (EKG), kl. 09:08
Jónína Rós Guðmundsdóttir (JRG), kl. 09:08
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 09:08
Ólína Þorvarðardóttir (ÓÞ), kl. 09:08
Sigurður Ingi Jóhannsson (SIJ), kl. 09:08
Þór Saari (ÞSa), kl. 11:05

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 09:08
Fyrir fundinn voru lögð drög að fundargerð síðasta fundar nefndarinnar. Gerðardrögin voru samþykkt.

2) 283. mál - velferð dýra Kl. 09:08
Á fund nefndarinnar komu Jón Gíslason og Halldór Runólfsson frá Matvælastofnun og Guðbjörg Þorvarðardóttir frá Dýralæknafélagi Íslands. Gestirnir kynntu nefndinni afstöðu sína til málsins og svöruðu spurningum nefndarmanna að því loknu.

3) Önnur mál. Kl. 11:16
Nefndin ræddi meðferð 415. máls, stjórnarskipunarlög (heildarlög), í ljósi umsagnarbeiðnar frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 11:27