66. fundur
atvinnuveganefndar á 141. löggjafarþingi
haldinn í færeyska herberginu Skála, fimmtudaginn 21. mars 2013 kl. 19:13


Mættir:

Einar K. Guðfinnsson (EKG), kl. 19:13
Höskuldur Þórhallsson (HöskÞ) fyrir SIJ, kl. 19:19
Jón Gunnarsson (JónG), kl. 19:13
Lilja Rafney Magnúsdóttir (LRM), kl. 19:13

KLM boðaði forföll.
BVG, ÓÞ, ÞSa og JRG voru fjarverandi.

Nefndarritari: Benedikt Sveinbj. Benediktsson

Bókað:

1) 283. mál - velferð dýra Kl. 19:13
Á fund nefndarinnar komu Hörður Harðarson og Geir G. Geirsson frá Svínaræktarfélagi Íslands. Gestirnir kynntu nefndinni afstöðu til breytingartillagna sem voru samþykktar við 2. umræðu. Að því búnu svöruðu þeir spurningum nefndarmanna.

2) Önnur mál. Kl. 19:50
Fleira var ekki rætt á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 19:50