39. fundur
atvinnuveganefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, fimmtudaginn 29. janúar 2015 kl. 09:00


Mættir:

Jón Gunnarsson (JónG) formaður, kl. 09:00
Björt Ólafsdóttir (BjÓ), kl. 09:00
Kristján L. Möller (KLM), kl. 09:00
Sigurður Örn Ágústsson (SÖÁ), kl. 09:00
Steingrímur J. Sigfússon (SJS) fyrir Lilju Rafneyju Magnúsdóttur (LRM), kl. 09:00
Þorsteinn Sæmundsson (ÞorS), kl. 09:00
Þórunn Egilsdóttir (ÞórE), kl. 09:00

Nefndarritari: Selma Hafliðadóttir

Bókað:

1) Fundargerð. Kl. 09:00
Dagskrárliðnum var frestað.

2) 321. mál - stefna stjórnvalda um lagningu raflína Kl. 09:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Ingva Má Pálsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Guðmund Inga Ásmundsson frá Landsneti og Karl Ingólfsson og Sveinbjörn Halldórsson frá Samtökum útivistarfélaga.

3) 305. mál - raforkulög Kl. 09:00
Nefndin hélt áfram umfjöllun sinni um málið og fékk á sinn fund Ingva Má Pálsson frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, Guðmund Inga Ásmundsson frá Landsneti og Karl Ingólfsson og Sveinbjörn Halldórsson frá Samtökum útivistarfélaga.

4) 11. mál - ívilnanir til nýfjárfestinga á Íslandi Kl. 10:15
Málið var afgreitt frá nefndinni.
Undir nefndarálit rita JónG, LRM, SÖÁ, BjÓ (með fyrirvara), KLM, ÞórE, ÞorS.
LRM var fjarverandi vegna þingstarfa erlendis. Ritar hún undir nefndarálit með heimild í 4. mgr. 18. gr. starfsreglna fyrir fastanefndir Alþingis. Ekki voru hreyfð andmæli við því.

5) Önnur mál. Kl. 10:20
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:20