59. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 151. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn þriðjudaginn 13. apríl 2021 kl. 09:10


Mætt:

Óli Björn Kárason (ÓBK) formaður, kl. 09:10
Jón Steindór Valdimarsson (JSV) 1. varaformaður, kl. 09:10
Brynjar Níelsson (BN) 2. varaformaður, kl. 09:45
Bryndís Haraldsdóttir (BHar), kl. 09:10
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn), kl. 09:10
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (SDG), kl. 09:10
Smári McCarthy (SMc), kl. 09:10
Þórarinn Ingi Pétursson (ÞórP), kl. 09:10

Oddný G. Harðardóttir var fjarverandi.

Nefndarritarar:
Arnar Kári Axelsson
Steindór Dan Jensen

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:10
Fundargerðir 55.-58. fundar voru samþykktar.

2) 624. mál - markaðir fyrir fjármálagerninga Kl. 09:10
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðmund Kára Kárason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Nefndin staðfesti umsagnarbeiðnir samkvæmt heimild í fundargerð 47. fundar með fresti til 14. apríl 2021 og ákvað að Brynjar Níelsson yrði framsögumaður þess.

3) 643. mál - afleiðuviðskipti, miðlægir mótaðilar og afleiðuviðskiptaskrár Kl. 09:40
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Guðmund Kára Kárason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Nefndin staðfesti umsagnarbeiðnir samkvæmt heimild í fundargerð 47. fundar með fresti til 14. apríl 2021 og ákvað að Óli Björn Kárason yrði framsögumaður þess.

4) 642. mál - fjármálafyrirtæki Kl. 09:50
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Gunnlaug Helgason frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Nefndin staðfesti umsagnarbeiðnir samkvæmt heimild í fundargerð 47. fundar með fresti til 14. apríl 2021 og ákvað að Óli Björn Kárason yrði framsögumaður þess.

5) 641. mál - lykilupplýsingaskjöl vegna tiltekinna fjárfestingarafurða fyrir almenna fjárfesta Kl. 10:00
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Benedikt Hallgrímsson frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Nefndin staðfesti umsagnarbeiðnir samkvæmt heimild í fundargerð 47. fundar með fresti til 14. apríl 2021 og ákvað að Óli Björn Kárason yrði framsögumaður þess.

6) 625. mál - stafrænt pósthólf í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda Kl. 10:20
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Gunnar Björnsson, Andra Heiðar Kristinsson og Hrefnu Lind Ásgeirsdóttur frá fjármála- og efnahagsráðuneyti.

Nefndin staðfesti umsagnarbeiðnir samkvæmt heimild í fundargerð 47. fundar með fresti til 14. apríl 2021 og ákvað að Bryndís Haraldsdóttir yrði framsögumaður þess.

7) Önnur mál Kl. 10:50
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:50