23. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 154. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, mánudaginn 11. desember 2023 kl. 12:30


Mætt:

Teitur Björn Einarsson (TBE) formaður, kl. 12:30
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 12:30
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 12:30
Björn Leví Gunnarsson (BLG) fyrir (GÓÓ), kl. 12:30
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 12:30
Jóhann Friðrik Friðriksson (JFF), kl. 12:30
Logi Einarsson (LE) fyrir Oddnýju G. Harðardóttur (OH), kl. 12:30
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 12:30
Vilhjálmur Árnason (VilÁ) fyrir Diljá Mist Einarsdóttur (DME), kl. 12:30

Nefndarritari: Þuríður Benediktsdóttir

Bókað:

1) 2. mál - breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2024 Kl. 12:30
Nefndin ræddi drög að nefndaráliti.

Tillaga um að afgreiða málið frá nefndinni var samþykkt af eftirfarandi nefndarmönnum: Teiti Birni Einarssyni, Ágústi Bjarna Garðarssyni, Ásthildi Lóu Þórsdóttur, Vilhjálmi Árnasyni, Guðbrandi Einarssyni, Jóhanni Friðriki Friðrikssyni, Loga Einarssyni og Steinunni Þóru Árnadóttur. Björn Leví Gunnarsson sat hjá.

Undir nefndarálit með breytingartillögu meiri hluta rita: Teitur Björn Einarsson, Ágúst Bjarni Garðarsson, Vilhjálmur Árnason, Jóhann Friðrik Friðriksson og Steinunn Þóra Árnadóttir.

2) Önnur mál Kl. 12:44
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 12:44